Securitas á Sjárvarútvegssýningunni 2026

 

Securitas verður á Sjávarútvegssýningunni (IceFish) 2026 í Smáranum dagana 22.–24. september. Þú finnur okkur á bás G23, þar sem við kynnum öryggislausnir fyrir sjávarútveg, fiskeldi, hafnarsvæði og starfsemi um borð í skipum.

Við hjá Securitas leggjum áherslu á lausnir sem hjálpa fyrirtækjum að vernda starfsfólk, búnað og rekstur við krefjandi aðstæður. Við vitum að í sjávarútvegi skipta áreiðanleiki og skjót viðbrögð miklu máli, hvort sem um er að ræða starfsemi á landi, við hafnir, í fiskvinnslu eða um borð í skipum.

Lausnir sem henta krefjandi umhverfi

Aðstæður í iðnaði tengdum sjávarútvegi geta verið krefjandi þar sem salt, raki, hreyfingar og ýmislegt annað geta gert miklar kröfur til bæði starfsfólks og öryggisbúnaðar. Securitas bjóða heildar lausnir fyrir hinar ýmsu aðstæður en þar á meðal eru

brunavarnir, myndavélakerfi, aðgangsstýringar og fjarmyndavötun með tenginu við stjórnstöð Securitas. Allar þessar lausnir hafa það sameiginlegt að aðstoða fyrirtæki að lágmarka tjón ef eitthvað óvænt kemur uppá.

Bruna- og slökkvikerfi

Securitas býður bruna- og slökkvikerfi fyrir sjávarútveginn sem henta meðal annars fyrir fiskvinnslur, vélarrými, tæknirými, kæli- og frystirými og önnur svæði þar sem skjót viðbrögð og réttur búnaður skipta miklu máli.

Meðal lausna er Inergen slökkvikerfi, sem hentar sérstaklega vel þar sem vatn, froða eða duft geta valdið tjóni. Inergen skilur ekki eftir sig leifar, eyðileggur ekki aflann og er hannað til að vera öruggt fyrir starfsfólk á þeim svæðum þar sem kerfið er notað.

Myndavélar og fjarmyndavöktun

Á básnum verða til sýnis myndavélar sem eru hannaðar fyrir erfiðar aðstæður, þar á meðal myndavélar sem þola salt, raka og krefjandi veður, hitamyndavélar, neðansjávarmyndavélar og víðlinsumyndavélar sem gefa betri yfirsýn yfir stór svæði.

Með fjarmyndavöktun getur stjórnstöð Securitas brugðist við boðum í rauntíma, staðfest atvik og dregið úr óþarfa útköllum. Lausnin eykur yfirsýn og getur skipt miklu máli þegar bregðast þarf hratt við. Einnig verður hægt að skoða myndavélaturninn okkar sem er færanlegur og hægt að nýta við ýmis tilefni þegar þörf á auknu myndavélaeftirliti.

Aðgangsstýringar

Aðgangsstýringar hjálpa fyrirtækjum að tryggja að rétt fólk hafi aðgang að réttum svæðum á réttum tíma, hvort sem um er að ræða hafnir, fiskvinnslu, kæligeymslur, tæknirými eða svæði um borð í skipum.

Komdu við á bás G23

Við hvetjum gesti sýningarinnar til að koma við á bás G23 og ræða við sérfræðinga Securitas um lausnir sem henta þeirra rekstri. Við hlökkum til að sjá sem flest í Smáranum 22.–24. september.

Myndeftirlitsturnar Securitas studdu við öryggi á Ljósanótt

Um nýliðna helgi var Securitas með tvo færanlega myndeftirlitsturna á hátíðarsvæði Ljósanætur í Reykjanesbæ. Turnarnir voru lánaðir hátíðinni sem styrkur frá Securitas, með það að markmiði að styðja við öryggi hátíðargesta og aðstoða lögreglu með betri yfirsýn yfir svæðið á einum stærsta og fjölmennasta viðburði ársins á Suðurnesjum.

Viðburðir á borð við Ljósanótt kalla á öryggislausnir sem hægt er að setja upp hratt, færa til eftir þörfum og aðlaga að aðstæðum hverju sinni. Færanlegir myndeftirlitsturnar eru einmitt hannaðir með slíkan sveigjanleika í huga og henta vel þar sem tímabundið þarf að auka yfirsýn og öryggi, til dæmis á tónleikum, útihátíðum, framkvæmdasvæðum og öðrum fjölmennum svæðum.

Betri yfirsýn og skjótari viðbrögð
Myndeftirlitsturnarnir eru búnir bæði föstum og hreyfanlegum myndavélum sem auðvelda yfirsýn yfir stór eða fjölfarin svæði. Með slíkri tækni er hægt að styðja við skjótari viðbrögð ef óvæntar aðstæður koma upp, greina aðstæður betur og beina réttum viðbragðsaðilum á réttan stað þegar þess þarf.

Á Ljósanótt var lögreglan á Reykjanesi með tengingu við turnana og gat þannig nýtt sér aukna yfirsýn á hátíðarsvæðinu. Securitas býður einnig upp á tengingu við stjórnstöð Securitas, sem getur verið mikilvægur hluti af öryggislausn fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og skipuleggjendur viðburða.

Sveigjanleg lausn án umfangsmikillar uppbyggingar
Styrkur færanlegra myndeftirlitsturna felst meðal annars í því að hægt er að koma þeim hratt fyrir þar sem þörfin er mest hverju sinni. Þannig má auka öryggi og yfirsýn tímabundið án þess að ráðast í umfangsmikla og kostnaðarsama uppbyggingu á svæðinu.

Notkun turnanna á Ljósanótt er gott dæmi um hvernig nútímalegar öryggislausnir geta stutt við öruggt og vel skipulagt viðburðahald. Með réttri tækni, góðu samstarfi og skýrri yfirsýn er hægt að skapa öruggara umhverfi fyrir gesti, starfsfólk og viðbragðsaðila.

Frekari upplýsingar um myndeftirlitsturnana má finna hér.

DAGUR ÖLDRUNAR 12. MARS 2026

Í síðustu viku, þann 12. mars,  tók Securitas þátt í Degi öldrunar sem haldinn var á Hótel Hilton í Reykjavík. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir fagfólk og fyrirtæki sem starfa á sviði öldrunarþjónustu og heilbrigðistækni, þar sem lögð er áhersla á miðlun þekkingar, nýjungar og faglegt samtal.

Á ráðstefnunni kynntum við öryggishnappana okkar ásamt því viðbragði sem fer af stað þegar boð berast frá þeim. Um er að ræða þjónustu þar sem sérþjálfað starfsfólk bregst hratt og faglega við útköllum, með það að markmiði að auka öryggi og tryggja skjót viðbrögð þegar þörf krefur.

Það sem stóð þó sérstaklega upp úr að okkar mati voru samtölin við fagfólk sem sótti ráðstefnuna. Við áttum gagnleg og áhugaverð samtöl við hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara sem deildu með okkur reynslu sinni og sýn á daglegt starf. Slík samtöl eru afar mikilvæg fyrir áframhaldandi þróun lausna, þar sem þau veita skýra mynd af raunverulegum þörfum notenda og þeirra sem starfa í þjónustunni.

Þátttaka í viðburðum sem þessum er okkur mikilvæg, bæði til að kynna okkar lausnir og ekki síður til að hlusta, læra og þróast í takt við þarfir samfélagsins.

Við þökkum fyrir vel heppnaðan viðburð og hlökkum til áframhaldandi samstarfs og samtals við fagfólk á þessu sviði.

SECURITAS Á VAKTINNI – MORGUNVERÐARFUNDUR

4

Fimmtudaginn 26. febrúar verður morgunverðarfundur í höfuðstöðvum okkar, Tunguhálsi 11 kl 8:30 -10:00. 


Á fundinum munu sérfræðingar fjalla um breytt brotamynstur, aukna áhættu og hvernig fyrirtæki geta með heildstæðum öryggislausnum, skýrum ferlum og réttri upplýsingagjöf styrkt varnir sínar og stuðlað að skilvirkari viðbrögðum þegar á reynir. 
 


Dagskrá:
Breytt brotamynstur og aukin áhætta
Fyrirlesari er:  Eiríkur Ronald Jósepsson, sérfræðingur í öryggismálum.
Þróun brotastarfsemi, hvernig öryggisumhverfið hefur breyst á undanförnum árum og hvernig eðli brota og ógna hefur þróast.

Heildarlausnir i öryggismálum fyrir fyrirtæki
 Fyrirlesarar eru: Sigríður Ýr Aradóttir og Ómar Örn Jónsson, vörustjórar Securitas.
Myndvarnir, neyðarhnappar, öryggi starfsfólks, vöktun og samhæfð viðbrögð stjórnstöðvar.

Frá boði til aðgerðar – viðbragðsferli lögreglu
Fyrirlesari er: Gunnar Ingi Þorsteinsson, aðalvarðstjóri FMR.
Lögreglan mun fjalla um mikilvægi réttra upplýsinga við atvik og hvernig varnir og skýringar fyrirtækja stuðla að skilvirkari viðbrögðum.

 

Við bjóðum upp á kaffi og girnilegan morgunverð í notalegu andrúmslofti.
Vinsamlegast staðfestu þáttöku fyrir 24. febrúar með því að skrá þig hér fyrir neðan.
Hlökkum til að sjá þig og byrja daginn á góðri samveru og áhugaverðum erindum.

Sjálfbærniuppgjör Securitas 2024

Securitas birtir sjálfbærniuppgjör í þriðja sinn sem nær yfir öll rekstrarsvið og starfsstöðvar félagsins. Auk Securitas, þá eru dótturfélögin Vari fasteignafélag ehf. og Geymslur ehf. tekin með í losunarbókhaldið. Árið er gert upp m.t.t. losunar í samræmi við UFS leiðbeiningar Nasdaq, GHG Protocol ásamt GRI, til að halda samanburðarhæfni í upplýsingagjöf milli ára. Uppgjörið hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti félagsins. 

Á árinu 2024 var tekið stórt skref til að greina stöðu félagsins og hefur Securitas greint hvaða sjálfbærniþættir eru mikilvægastir með framkvæmd tvöfaldri mikilvægisgreiningu. 

Sjálfbærniuppgjör Securitas 2024

Umhverfisstefnu félagsins má nálgast hér

Mánaðargjöld öryggishnappa Securitas lækka

Frá og með 1. apríl 2025 mun Securitas lækka mánaðargjald öryggishnappa sem eru samþykktir af Sjúkratryggingum Íslands úr kr. 985  í kr. 515   

 Þjónusta Securitas til viðskiptavina helst óbreytt, þar sem öryggi viðskiptavina okkar er í forgangi.   

  • Boð sem berast frá öryggishnöppum eru forgangsútköll hjá Securitas.  
  • Á útkallssvæði Securitas eru sendir einn til tveir öryggisverðir á staðinn með lykil að húsnæðinu.   
  • Öryggisverðir Securitas hafa mörg hlotið sömu grunnþjálfun og aðilar í sjúkraflutningum. Öryggisverðir okkar geta aðstoðað fólk í erfiðum aðstæðum, veitt fyrstu bráðaþjónustu og metið hvort kalla þurfi eftir frekari aðstoð.   

   

Okkar vakt lýkur aldrei   

Fyrirmyndarfyrirtæki í vinnustaðanámi

Nemastofa atvinnulífsins hefur veitt Securitas viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki fyrir framúrskarandi árangur í þjálfun og kennslu iðnnema. Þessi árlegu verðlaun eru veitt fyrirtækjum sem skarað hafa fram úr í vinnustaðanámi.
 
Securitas hefur lagt sérstaka áherslu á að skapa góða aðstöðu fyrir rafvirkjanema til undirbúnings til sveinsprófs. Nemar njóta öflugs stuðnings tæknisviðs og leiðsagnar frá Jóhanni Kolbeins, meistara hússins, og Andra Mogensen.
 
Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu frá Nemastofu og munum halda áfram að leggja okkur fram við að veita iðnnemum framúrskarandi þjálfun og stuðning.
 
Verðlaunin afhenti Forseti Íslands við hátíðlega athöfn laugardaginn 8. febrúar síðastliðinn.

 

Sjálfbærniuppgjör Securitas 2023

Securitas birtir sjálfbærniuppgjör í annað sinn sem nær yfir öll rekstrarsvið og starfsstöðvar félagsins. Auk Securitas, þá eru dótturfélögin Vari fasteignafélag ehf. og Geymslur ehf. tekin með í losunarbókhaldið. Árið er gert upp m.t.t. losunar í samræmi við UFS leiðbeiningar Nasdaq, GHG Protocol ásamt GRI, til að halda samanburðarhæfni í upplýsingagjöf milli ára. Uppgjörið hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti félagsins. 

Á árinu 2023 var tekið stórt skref til að greina stöðu félagsins og hefur Securitas hafið þá vinnu að greina hvaða sjálfbærniþættir eru mikilvægastir með framkvæmd tvöfaldrar mikilvægisgreiningar. Árið 2024 mun einkennast af undirbúningi fyrir skýrslugjöf  í samræmi við Corporate Sustainability Reporting Directive (CSRD). 

Sjálfbærniuppgjör Securitas 2023

Umhverfisstefnu félagsins má nálgast hér

Reynslusaga viðskiptavinar – Iceland Parliament Hotel

Securitas þjónustar Iceland Parliament Hotel með allar öryggislausnir. Um er að ræða bruna- og innbrotaviðvörunarkerfi, aðgangsstýringar auk myndeftirlit. Hilton hótelkeðjan er með háa öryggisstaðla og gerir miklar kröfur; í mörgum tilfellum meiri en íslensk lög og reglur um öryggismál segja til um. Rekstraraðilar hótelsins og fulltrúar hótelkeðjunnar meta þjónustu Securitas þannig að hún hafi farið fram úr þeirra væntingum.

ÁSKORANIR

Aðgengi

Starfsfólk og gestir hótela þurfa að geta komist leiðar sinnar innan hótelsins á öllum tímum sólarhringsins. Til að tryggja hnökralaus samskipti starfsfólks og gesta er nauðsynlegt að hægt sé að stýra aðgengi á einfaldan og skilvirkan máta með aðgangsstýringu sem stenst ströngustu kröfur nútímans.

Öryggi

Öryggisstaðall Hilton er afar metnaðarfullur og inniheldur kröfur sem ganga lengra en íslenskar reglur segja til um. Það rennir enn styrkari stoðum undir eitt af lykilatriðum í hótelrekstri, sem er að tryggja öryggi gesta. Gestir hafa
miklar væntingar varðandi eigið öryggi og leggja mikið uppúr því að fyllsta öryggi sé alltaf til staðar.

Gæði

Öryggi gististaða er mikilvægt fyrir stóran hóp ferðalanga við val á gististað. Á Iceland Hotel Parliament eru öryggislausnir í gæðaflokki sem vekja athygli margra viðskiptavina við val á gististað. Erlend flugfélög, ferðaskrifstofur og stofnanir sem þurfa gistingu fyrir sitt starfsfólk leggja mikla áherslu á öryggi. Þau framkvæma oft ítarlegar úttektir og kannanir á öryggismálum hótela áður en þau velja samstarfsaðila.

„Samstarfið við Securitas hefur verið langt og farsælt. Það hefur skapast mikil reynsla og þekking sem nýtist daglega, þetta er svolítið eins og gott hjónaband.“ Gylfi Jónasson, öryggisstjóri Iceland Parliament Hotel.

LAUSNIR

ÖRYGGI

  • Öryggislausnir Securitas uppfylla strangar kröfur Hilton-keðjunnar, m.a. um brunavarnir og stýringar á búnaði sem er beintengdur brunavarnarkerfinu, s.s. lyftur, sýningartjöld og hljóðkerfi í opnum rýmum.
  • Myndavélaeftirlit á opnum svæðum og utanhúss hótel hjálpar svo til við að fylgjast með umgengi um hótelið.

 

AÐGENGI

  • Nær allar hurðir á hótelinu eru aðgangsstýrðar með aðgangsstýrikerfi Securitas. Öll hótelherbergi, auk þjónusturýma og annarra rýma í húsinu eru aðgangsstýrð. Með réttum og viðeigandi aðgangsheimildum eykur þessi búnaður öryggi og skapar vellíðan og ró hjá starfsfólki og gestum. Þá má geta þess að árásarhnappar eru beintengdir stjórnstöð Securitas sem getur sent bæði öryggisverði og lögreglu á vettvang þegar þess gerist þörf.

 

EFTIRFYLGNI

  • Hilton gerir miklar kröfur um úttektir á öllum kerfum meðan á byggingu hótels stendur sem og í daglegum rekstri þess. Sérfræðiþekking Securitas var því nauðsynleg á byggingarstiginu og skjót viðbrögð sérfræðinga við að aðlaga kerfin að hinum miklu kröfum sem Hilton gerir skipti sköpum við að ná að klára lokaúttekti

 

ÞRÓUN

  • Vöruþróun Securitas hefur meðal annars tekið mið af og staðist síauknar kröfur ferðamanna með ári hverju. Kröfurnar sem Hilton hótelkeðjan gerir til Iceland Parliament Hotel varðandi öryggi og brunavarnir eru miklar en samstarf Securitas og hótelsins við að uppfylla þær hefur gengi vel þar sem væntingum og hraðri þróun í öryggismálum hefur verið mætt.

,,Sérfræðingar Securitas voru fljótir að bregðast við og mæta þörfum Hilton varðandi öryggismál“ – Gylfi Jónasson, öryggisstjóri Iceland Parliament Hotel.

Upplifun gesta er grundvallaratriði í hótelrekstri og þar skiptir aðgengið miklu máli. Allar lausnir þurfa að virka á öllum stundum, en þjónusta Securitas við lausnirnar er ekki síður nauðsynleg. Ef bregðast þarf við óvæntum atburðum tengdum lausnum Securitas, þá er þjónustuver Securitas skjótt að útvega rétta aðstoð á staðinn og utan opnunartíma kallar stjórnstöð Securitas út viðeigandi bakvakt.

Reynslusaga viðskiptavinar – Hótel Hálönd

Hótel Hálönd er nútímalegt hótel þar sem gestirnir afgreiða sig sjálfir, hvar og hvenær sem þeim hentar. Hótelið er staðsett við rætur Hlíðarfjalls með frábæru útsýni yfir Akureyri og víðsýnt er til allra átta. Þegar hótelgestir hafa bókað og staðfest dvöl sína fá þeir sendan aðgangskóða að hótelinu innan 15 mínútna eftir að bókun er staðfest.

ÁSKORANIR

Aðgengi

Eitt af aðalmarkmiðum eigenda og rekstraraðila hótelsins var að hafa hótelið ómannað og gera gestum kleift að afgreiða sig sjálfir. Meðal helstu áskorana var því að tryggja að auðvelt væri að stýra aðgengi gesta og starfsfólks innan hótelsins; hvort sem um ræðir aðgang að herbergjum eða geymslum fyrir skíði, hjól og annan tilheyrandi frístundarbúnað.

Öryggi

Mjög mikilvægt er að gestir upplifi á öllum stundum öryggi og traust meðan á dvöl þeirra stendur. Þar sem ætlunin er að hafa lágmarksfjölda starfsmanna er nauðsynlegt að geta fylgst með og fengið tilkynningar í síma eða tölvu þegar þörf er fyrir viðbrögð starfsfólks.

Hagkvæmni

Að gestir geti án vandkvæða bókað herbergi með skömmum fyrirvara og fengið sjálfvirka upplýsingagjöf um hvernig gengið er um hótelið, er beggja hagur. Engin þörf er því fyrir afhendingu lykla og lásar á hurðum eru nánast hvergi sjáanlegir á hótelinu. Með nútímatækni og sjálfsafgreiðslu á öllum tímum sólarhrings er hægt að halda verði á hótelgistingu í lágmarki.

„Samstarfið við Securitas hefur verið farsælt og má þá sérstaklega nefna liðlegheit og snögg viðbrögð þegar mikið liggur við.“ Írena Elínbjört, framkvæmdastjóri og hótelstjóri Hótel Hálanda.

LAUSNIR

Öryggi

  • Tryggja þurfti að aðgangskóðar væru einungis nothæfir meðan á bókunartíma stendur og að þeir myndu eyðast eftir að gestir hafa yfirgefið hótelið.
  • Myndeftirlitskerfi var sett upp á nauðsynlegum stöðum svo auðvelt væri að fylgjast með og tryggja öryggi gesta á hótelinu

 

Hagkvæmni

  • Keyrsla á milli aðgangsstýrikerfisins og bókunarkerfisins fer fram á 15 mínútna fresti svo auðvelt er fyrir gesti að bóka herbergi með skömmum fyrirvara á hvaða tíma sólahrings sem er. Með þessari lausn er mögulegt fyrir hótelið að vera nánast ómannað starfsfólki og sparast því töluverður kostnaður í rekstrinum. Þægindin fyrir gestina eru einnig umtalsverð og sparast m.a. sá tími sem alla jafna fer í að skrá sig inn og út af hóteli, ásamt því að þurfa ekki að halda utanum lykil eða aðgangskort.

 

AÐGENGI

  • Áhersla var lögð á að aðgengi fyrir gesti yrði lyklalaust og að viðskiptavinir myndu fá aðgangskóða við bókun sem væri notaður til þess að komast inn á hótelið og í rétt herbergi. Aðgangsstýrikerfi frá Securitas sem ,,talar við“ bókunarkerfi hótelsins, leysti þessa áskorun. Kerfin vinna þannig saman og búa til aðgangskóða fyrir hverja bókun. Sami aðgangskóði gildir fyrir sérútbúna þurrskápa í skíða- hjólageymslu frir hvert herbergi.

 

„Í byrjun voru ekki margir sem höfðu trú á hugmyndum okkar um ómannað hótel, en snjallar tæknilausnir í samstarfi við Securitas hafa breytt því“ – Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri SS byggir og eigandi Hótel Hálanda.