Gagnaver
Öryggislausnir fyrir gagnaver
Gagnaver hýsa mikivægan tækjabúnað og starfsemi þar sem öryggi og samfelldur rekstur skipta miklu máli. Aðgangur að viðkvæmum svæðum, eldhætta, óheimilar heimsóknir og önnur frávik kalla á öflugar og áreiðanlegar öryggislausnir. Securitas býður heildstæðar öryggislausnir fyrir gagnaver, allt frá aðgangstýringum og myndeftirliti til brunavarna og vöktunar. Lausnirnar eru sérsniðnar að þörfum, starfssemi og aðstæðum fyrir hvert gagnaver.
Aðgangsstýringar
Í gagnaverum er mikilvægt að hafa stjórn á því hvaða aðilar hafa aðgang að viðkvæmum svæðum. Öryggissérfræðingar Securitas eru þaulreyndir í að vinna með viðkvæm rými og gögn þar sem þarf að stýra aðgengi starfsfólks og gesta.
ITC innbrota og aðgangskerfin okkar eru miðlægkerfi sem bjóða upp á ótakmarkaða stækkun, ítarlega skýrslugerð, grafísk kort og samþættingu við myndeftirlitskerfi. Kerfin geta einnig stýrt lýsingu, loftræstingu, hliðum og öðrum tækjabúnaði í byggingum út frá atburðum eða tímastillingum.
Myndeftirlit & fjarmyndavöktun
Öflugt myndeftirlit og fjarmyndavöktun veita skýra yfirsýn yfir mikilvæg svæði innan og utan gagnavers og hjálpa til við að greina óvenjulega umferð og atvik áður en þau þróast.
Lausnir Securitas byggja meðal annars á Avigilon, einu fremsta myndeftirlitskerfi heims, með háþróaða gervigreind, öfluga myndgreiningu og öruggri meðferð gagna.
Kerfi sem hentar sérstaklega vel þar sem gerðar eru miklar kröfur um öryggi og rauntímavöktun.
Reyndir ráðgjafar Securitas vinna með hverju fyrirtæki fyrir sig að sveigjanlegri heildarlausn sem tekur mið af aðstæðum, áhættu og sérþörfum starfseminnar á hverjum stað.
Slökkvikerfi
Eldur getur haft alvarleg áhrif á viðkvæman tækjabúnað og valdið kostnaðarsömum rekstrarstöðvunum. Ingergen gasslökkvikerfi er hannað fyrir rými þar sem mikilvægt er að slökkva eld hratt og án vatns, freons eða tilbúinna efna. Inergen kerfið notar náttúrulegar lofttegundir sem finnast í andrúmsloftinu og skilur hvorki eftir sig raka né efnafræðilegar leifar við afhleypingu. Þannig er hægt að verja verðmætan búnað og draga úr hættu á skemmdum og lágmarka tjón.
Brunaviðvörunarkerfi
Áreiðanleg brunaviðvörun er lykilatriði í rekstri gagnavera.
Secrutions ASD reyksogskerfi nema reykagnir í lofti löngu áður en reykur verður sýnilegur og henta því sérstaklega vel þar sem öflugt loftflæði frá kælikerfum getur gert hefðbundnum reykskynjurum erfiðara fyrir. Notifier brunaviðvörunarkerfi bjóða jafnframt upp á áreiðanlega og skalanlega vöktun fyrir stór og flókin svæði.
Hægt er að tengja margar stjórnstöðvar saman í eitt net og fá þannig miðlæga sýn yfir brunakerfi á einum stað með ONTXWorks-hugbúnaðinum.
Öryggisgæsla
Securitas býður upp á sveigjanlega gæsluþjónustu sem er sniðin að starfsemi og áhættumati hverju sinni. Til að mynda býður Securitas upp á farandgæslu sem felur í sér reglulegt eftirlit öryggisvarða með húsnæði, ytra svæði og mikilvægum búnaði.
Þar sem þörf er á stöðugri viðveru getur sérþjálfað starfsfólk Securitas sinnt mannaðri gæslu á staðnum, haft eftirlit með aðgengi og umferð og brugðist hratt við óvæntum atvikum.
Með skýrum verkferlum, sýnilegri nærveru og þjónustulund verður gæslan hluti af daglegum rekstri og stuðlar að öruggara og faglegra umhverfi.
Umsjón & eftirlit
Reglubundið eftirlit og fagleg umsjón með brunavörnum og öðrum öryggiskerfum eru mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi á vinnustað. Securitas sinnir árlegum úttektum á brunaviðvörunarkerfum, reyksogskerfum, slökkvikerfum og öðrum slökkvibúðnaði. Við úttektir er farið yfir ástand og virkni búnaðar og frávik skráð.
Með skipulögðu eftirliti er hægt að greina bilanir og veikleika áður en þeir hafa áhrif á virkni kerfanna. Skýr yfirsýn yfir stöðu búnaðar og fyrirbyggjandi viðhald auðvelda rekstraraðilum að halda brunavörnum í góðu ástandi og bregðast tímanlega við breytingum á húsnæði eða starfssemi.
Stjórnstöð Securitas
Stjórnstöð Securitas er opin allan sólarhringinn, alla daga ársins og tryggir stöðuga vöktum á mikilvægum öryggiskerfum. Þangað berast boð frá brunaviðvörunarkerfum, innbrotakerfum og aðgangsstýringum svo hægt sé að fylgjast með frávikum og atvikum á einum stað. Þegar boð berast er unnið samkvæmt fyrirfram skilgreindum viðbragðsferlum sem taka mið af starfssemi, áhættu og þörfum hvers viðskiptavinar.
Með miðlægri vöktun fær rekstraraðili skýra yfirsýn og markviss viðbrögð þegar eitthvað óvenjulegt kemur upp. Stjórnstöðin getur komið upplýsingum áfram til skilgreindra tengiliða og virkjað viðeigandi viðbrögð í samræmi við þá ferla sem samið hefur verið um.
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.