Securitas býður öruggar og smekklegar snertilausar lausnir. Fallega hannaður búnaður, þunn plata úr ryðfríu stáli, rofi með LED-lýsingu og næmum og endingargóðum infrarauðum skynjara. Kjörinn kostur til að opna dyr og innganga með sjálfvirkri stýringu án snertingar eða handafls.
Snertilaus hurðaopnun hentar sérstaklega vel þar sem mikilvægt er að minnka smit- og sýklahættu, t.a.m. á sjúkrastofnunum, rannsóknarstofum, í eldhúsum, mötuneytum og öðrum stöðum þar sem matur er borinn fram. Snertilaus rofi er hreinlegri kostur og hentar einnig vel fyrir eldra fólk og fatlaða einstaklinga.