Securitas birtir sjálfbærniuppgjör í þriðja sinn sem nær yfir öll rekstrarsvið og starfsstöðvar félagsins. Auk Securitas, þá eru dótturfélögin Vari fasteignafélag ehf. og Geymslur ehf. tekin með í losunarbókhaldið. Árið er gert upp m.t.t. losunar í samræmi við UFS leiðbeiningar Nasdaq, GHG Protocol ásamt GRI, til að halda samanburðarhæfni í upplýsingagjöf milli ára. Uppgjörið hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti félagsins.
Á árinu 2024 var tekið stórt skref til að greina stöðu félagsins og hefur Securitas greint hvaða sjálfbærniþættir eru mikilvægastir með framkvæmd tvöfaldri mikilvægisgreiningu.
We use cookies to ensure that we give you the best experience on our website. If you continue to use this site we will assume that you are happy with it.