Í síðustu viku, þann 12. mars, tók Securitas þátt í Degi öldrunar sem haldinn var á Hótel Hilton í Reykjavík. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir fagfólk og fyrirtæki sem starfa á sviði öldrunarþjónustu og heilbrigðistækni, þar sem lögð er áhersla á miðlun þekkingar, nýjungar og faglegt samtal.
Á ráðstefnunni kynntum við öryggishnappana okkar ásamt því viðbragði sem fer af stað þegar boð berast frá þeim. Um er að ræða þjónustu þar sem sérþjálfað starfsfólk bregst hratt og faglega við útköllum, með það að markmiði að auka öryggi og tryggja skjót viðbrögð þegar þörf krefur.
Það sem stóð þó sérstaklega upp úr að okkar mati voru samtölin við fagfólk sem sótti ráðstefnuna. Við áttum gagnleg og áhugaverð samtöl við hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara sem deildu með okkur reynslu sinni og sýn á daglegt starf. Slík samtöl eru afar mikilvæg fyrir áframhaldandi þróun lausna, þar sem þau veita skýra mynd af raunverulegum þörfum notenda og þeirra sem starfa í þjónustunni.
Þátttaka í viðburðum sem þessum er okkur mikilvæg, bæði til að kynna okkar lausnir og ekki síður til að hlusta, læra og þróast í takt við þarfir samfélagsins.
Við þökkum fyrir vel heppnaðan viðburð og hlökkum til áframhaldandi samstarfs og samtals við fagfólk á þessu sviði.