Aðgangskerfi

 

Mikilvægi þessi að vera með öflug aðgangskerfi hefur aukist verulega undanfarin ár. 

Markmiðin með innleiðingu aðgangskerfa geta verið fjölþætt en þegar kemur að því að verja svæði hvort sem það er vegna verðmæta sem þar er að geyma eða til að tryggja hreinlæti og eða stýra aðgengi  þá búa öryggissérfræðingar Securitas yfir áratuga reynslu á þessu sviði. 

Securitas býður aðgangskerfi og tengdan búnaði frá nokkrum af virtustu framleiðendum heims.

Með fullkomna stjórn á aðgangsmálum

SAMAN FINNUM VIÐ HENTUGUSTU LAUSNINA fyrir þitt fyrirtæki

Með aðgangskerfum frá Securitas er hægt að stjórna aðgangi um húsnæði fyrirtækisins með fullkomnum hætti. 

Mikilvægt er að velja stjórnkerfi sem hentar þörfum fyrirtækisins eins og þær eru í dag og að það geti vaxið og þróast í takt við framtíðaráætlanir.

Þrautreyndir sérfræðingar Securitas í aðgangsstýringum aðstoða við að velja miðlægt stjórnkerfi og þá skynjara og annan búnað sem notaður er til að stjórna aðgengi.

hvað felst í aðgangskerfum

Aðgangskerfi skiptast í þrjá megin hluta:

Miðlægt stjórnkerfi

Sérfræðingar Securitas aðstoða við að velja stjórnkerfi fyrir aðgangsstýringar sem hentar þörfum viðskiptavina í dag með vöxt og framtíðarþróun fyrirtækisins í huga​

Lesarar og læsingar

Til að stýra aðgengi að svæðum verður að setja stýringar á hurðir, hlið og skápa eftir atvikum.​

Auðkenni

Það eru nokkrar grunnleiðir notaðar til auðkenna notendur og veita þeim aðgang eftir skilgreindum heimildum. Ýmist með snertingu eða snertilaust. Einnig er fleiri en einni leið til auðkenningar blandað saman á svæðum með hærra öryggisstig.​

Aðgangsstýringakerfi fyrir allar stærðir fyrirtækja frá Securitas

Miðlæg aðgangskerfi fyrir allar stærðir fyrirtækja

Það skiptir ekki máli hversu stórt eða lítið fyrirtækið er. Ef það er þörf á að stýra aðgengi þá er Securitas með lausnina.

Sérfræðingar Securitas hafa áralanga reynslu af hönnun og uppsetningu aðgangskerfa af öllum stærðum og gerðum.

  • Verslanir
  • Heildverslanir
  • Heilbrigðisþjónustu
  • Skrifstofur
  • Iðnaðarhúsnæði
  • Skólar
  • Íþróttamannvirki
  • Fjármálastofnanir
  • Hótel
  • Flutningafyrirtæki
  • Tæknifyrirtæki
  • Gagnaver
  • Virkjanir
  • Sjávarútvegsfyrirtæki
  • Flugfélög
  • Vinnusvæði
  • Lyfjafyrirtæki
  • Fjölbýlishús

Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.

Aukið öryggi og minni smithætta

Með aðgangsstýringalausnum er hægt að stýra aðgengi inn í og út úr fyrirtækinu og eins á mismunandi svæðum innan þess án þess að notendur þurfi að snerta nokkuð. 

Hvort sem markmiðin eru tengd öryggi, hreinlæti eða bættum rekstri þá er Securitas með reynslu og þekkingu til að aðstoða þig við val á réttu lausninni.

Aðgangsstýringar fyrir fyrirtæki
Aðgangsstýringakerfi sem geta vaxið með fyrirtækinu

Aðgangskerfi sem geta vaxið með fyrirtækinu

Fjárfesting í öryggi til framtíðar. Við val á aðgangsstýringakerfum er mikilvægt að kerfið uppfylli þarfir fyrirtækisins í dag en geti einnig vaxið í takt við þróun fyrirtækisins.

Securitas býður í senn mjög öflug og fjölhæf aðgangskerfi sem eru á sama tíma mjög sveigjanleg þegar kemur að vali á jaðarbúnaði og stækkunarmöguleikum.

Securitas er til margra ára samstarfsaðili nokkurra þeirra fyrirtækja sem eru leiðandi þegar kemur að öryggismálum um heim allan.

Vertu viss um að velja lausn sem getur þróast auðveldlega með fyrirtækinu.

Auðveld stjórnun hvar sem þú ert

Eitt af lykilatriðum við val á aðgangsstýringakerfi er að það sé auðvelt í notkun. Securitas býður aðgangsstýringakerfi sem auðvelt er að stjórna í gegnum myndrænt viðmót.

Með auðveldum og skýrum hætti má, læsa og opna hurðir, setja og taka svæði af verði.

Viðvaranir birtast uppi á skjá. Einnig er hægt að hanna og prenta aðgangskort í gegnum ákveðin kerfi.

Með nettengdu aðgangskerfi getur þú stjórnað aðgerðum hvar sem þú ert í netsambandi.

Stjórnendur geta fylgst með hvar sem er
innbrotakerfi frá Securitas bíll fyrir utan iðnaðarhúsnæði

Sambyggt innbrotakerfi

Hluti af því sem aðgangskerfi gera er að skrá og gera viðvart ef eitthvað óvænt kemur upp á. 

Ef einhver skynjari í kerfinu sendir boð um opnun eða hreyfingu þá sendir kerfið boð eftir skilgreindum leiðum.

Ein af þessum leiðum getur verið beintenging við stjórnborð Securitas og viðbragðsafl sem sent er af stað um leið.

Einnig geta skilaboð um óvænt atvik verið send samtímis eða eingöngu á stjórnendur og eða öryggisstjóra fyrirtækisins.

Stjórnaðu aðgengi viðskiptavina og starfsfólks

Aðgangskerfi eru ekki eingöngu nýtt til að stjórna aðgengi starfsfólks heldur líka aðgengi viðskiptavina.

Aukið öryggi og hagræðing getur áunnist með rétt hönnuðum og vel uppsettum aðgangskerfum.

Hafðu samband við sérfræðinga Securitas og fáðu ráðgjöf um hentugt aðgangskerfi fyrir þitt fyrirtæki.

Með nýjustu lesurunum frá Securitas geta notendur auðkennt sig með snjallsímum, snjallúrum og snjallkortum.

Aðgangsstýringar lesarar fyrir snjallsíma

Sveigjanlegar aðgangsheimildir

Auðvelt er að stofna eða breyta aðgangsheimildum og veita þær til lengri eða skemmri tíma.

Sveigjanleiki

Stjórnendur ákveða hver má fara inn á hvaða svæði og hvenær. Auðvelt er að stofna eða breyta aðgangsheimildum og veita þær til lengri eða skemmri tíma. Þannig er auðvelt að stýra aðgengi starfsfólks og t.d. utanaðkomandi þjónustuaðila sem eiga erindi inn í fyrirtækið í eitt skipti eða með reglulegum hætti.

Tímastýrður aðgangur

Með einföldum hætti er hægt að láta aðgangskerfi kveikja eða slökkva á búnaði og opna eða læsa á ákveðnum tímum.

Allt á réttum tíma

Með aðgangskerfum er mögulegt að láta hurðir læsast eða aflæsast sjálfvirkt á mismunandi tímum sólarhringsins. Með þessu er hægt að bæta öryggi og einnig spara starfsmannakostnað. Fyrirtæki hafa valið þessa leið til að opna fyrir viðskiptavini með sjálfvirkum hætti t.d. á líkamsræktarstöðvum. Þú ákveður hvernig þetta á að vera.

Fullkominn rekjanleiki​

Það getur reynst afar dýrmætt að geta rakið atburðarás aftur í tímann. Nákvæm skráning á umgengni og auðveld greining er einn af fjölmörgum eiginleikum aðgangskerfa.

Rekjanleiki

Með nútímalegum aðgangsstýringakerfum frá Securitas er auðvelt að rekja atburðarrás í gegnum notendavænt viðmót á tölvuskjá.

Aukið öryggi og aukin þægindi

Öruggt aðgengi án lykla

Með aðgangskerfi er hægt að skapa lyklalaust umhverfi. Með auðveldum hætti er hægt að stjórna aðgengi allra starfsmanna með auðveldum og fljótlegum hætti.

Taktu stjórnina á öllu aðgengi í þínar hendur.

Slepptu umstangi og kostnaði við framleiðslu lykla og áhættu að þeir lendi í röngum höndum. Með mjög einföldum aðgerðum er hægt að breyta eða loka aðgangsheimildum tímabundið eða endanlega.

Notendur geta auðkennt sig með snjallsímum, snjallúrum, snjallkortum findgraförum, andlitsgreiningu, augnhimnu og fleir leiðum allt eftir því sem hentar best á hverjum stað.

Lesarar og annar búnaður fyrir aðgangskerfi

Tengimöguleikar á búnaði við aðgangskerfi Securitas eru nánast endalausir. Fyrirtæki geta valið hverju þau vilja stýra aðgengi að og hvernig. Sérfræðingar Securitas hanna og setja upp lausnir eftir þörfum hverju sinni með framtíðarmöguleika í huga. 

Hægt er að velja bæði búnað sem lagt er fyrir eða þráðlausan búnað auk þess að geta blandað þessu tvennu saman.

Fjölbreytt úrval lesara og annars búnaðar gefa fyrirtækjum mikinn sveigjanleika til að fá lausnir sem eru auðveldar og öruggar í notkun.

Kynntu þér lesara og annan búnað sem hægt er að nota við aðgangsstýringakerfi.

Augnskannar

Fingrafaraskannar

Andlitsgreining

Snertilaust

Þráðlaust

Talnaborð

Hurðir

Skápar

Aðgangshlið

Bílahlið

Lyftur

Dyrasímar

Augnskannar

Fingrafara

Andlitsgreining

Snertilaust

Þráðlaust

Talnaborð

Hurðir

Skápar

Aðgangshlið

Bílahlið

Lyftur

Dyrasímar

Hvað segja viðskiptavinir okkar

Eitt eða fleiri auðkenni

Fjölbreyttar leiðir til auðkenninga

Einn af lykilþáttum í árangursríkri innleiðingu á aðgangskerfi er örugg og einföld auðkenning á notendum. Það sem notað er til að auðkenna getur verið eitthvað sem þú manst, eitthvað sem þú berð eða eitthvað sem er hluti af þér.

Algengt er að huga fyrst að öruggu aðgengi inn og út úr fyrirtækinu og næsta skref er að skilgreina mismunandi öryggisvæði í fyrirtækinu. Það fer svo eftir hversu hátt öryggisstig þarf að vera á hverju svæði hvort eitt eða fleiri auðkenni eru notuð og þá hvaða auðkenni. Unnt er að velja um snerti eða snertilausa auðkenningu, öryggiskort, slá inn aðgangskóða eða nota líffræðileg einkenni allt eftir því sem hentar til að uppfylla þarfir um öryggi og hreinlæti. 

Kort

Dropar

Snjallsími

Fingrafar

Augu

Andlit

Meira öryggi með hagkvæmari hætti

Heildarlausnir í öryggismálum

Hjá Securitas getur þú fengið aðstoð reyndra sérfræðinga við öll öryggismál fyrirtækisins.

Með öll öryggismál hjá einum samstarfsaðila líkt og Securitas er mögulegt að byggja heildstæðar lausnir með hagkvæmum og öruggum hætti.

Sérfræðingar Securitas sækja reglulega mjög krefjandi námskeið um nýjungar í öryggismálum og helstu ógnir á hverjum tíma og bjóðum því okkar viðskiptavinum bestu lausnirnar á hverjum tíma. 

Ekki gera málamiðlanir þegar kemur að öryggismálum fyrirtækisins.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar í aðgangsstýringum

Oddsteinn Björnsson hjá Securitas Oddsteinn-Bjornsson_lit-300

Oddsteinn Örn Björnsson

Viðskiptastjóri

Þorkell Frímann Viðarsson hjá Securitas Þorkell Frímann Viðarsson hjá Securitas

Frímann Viðarsson

Viðskiptastjóri

Heiða Björk Júlíusdóttir hjá Securitas Heiða Björk Júlíusdóttir hjá Securitas

Heiða Björk Júlíusdóttir

Viðskiptastjóri

Samstarfsaðilar

Leiðandi í aðgangsstýringakerfum og tengdum búnaði