Notendavænt kerfi gerir kleift að setja inn myndir, myndbönd og skjöl og birta efni á stafrænum skjám á einfaldan hátt. Hægt er að skipuleggja birtingu eftir tíma dags og stjórna einum eða mörgum skjám samtímis úr sama kerfi.
Kerfið styður fjölbreytt skráarsnið eins og myndir, myndbönd og PDF skjöl og gerir auðvelt að halda efni lifandi og síbreytilegu. Innbyggt hönnunartól gerir einnig kleift að búa til efni beint í kerfinu eða hlaða inn efni úr öðrum forritum.