Öryggi á heimilum
HEIMAVÖRN
SUMARHÚSAVÖRN
ÖRYGGISHNAPPUR
ÖRYGGISVÖRUR
Þú stjórnar öllu í gegnum sama appið
Þú stjórnar öllu í sama appinu hvort sem þú ert með Heimavörn, Sumarhúsavörn eða Fyrirtækjavörn.
Með appinu getur þú stýrt öllum aðgerðum með símanum eða í tölvunni hvar sem þú ert í sambandi á annað borð og fengið margs konar tilkynningar og áminningar sjálfkrafa.
Appið er á íslensku, það er einfalt og þægilegt í notkun og öryggismál og dulkóðanir eru í flokki með því öflugasta sem þekkist. Hafðu auga með heimilinu og stjórnaðu aðgerðum í þægilegu og einföldu viðmóti í appinu hvar sem þú ert, hvenær sem er.
Stjórnstöð Securitas er síðan á vaktinni allan sólarhringinn og bregst við ef boð berast frá kerfinu.

Lífsgæði og hugarró

Lífsgæði og hugarró
Sumarhúsavörn+ er snjöll öryggislausn fyrir sælureit fjölskyldunnar í sveitinni.
Með appinu getur þú fylgst með sumarhúsinu og stjórnað öryggiskerfinu og snjallbúnaði ásamt því að kveikja og slökkva á ýmsum raftækjum eða stýra notkun þeirra með snjalltengjum.
ÖRYGGISHNAPPUR
Öryggi öllum stundum
Með öryggishnapp Securitas um úlnlið eða háls eykur þú öryggi þitt innan veggja heimilisins.
Ef eitthvað kemur upp á er einfalt og fljótlegt að gera aðvart. Með neyðarhnapp við höndina býrðu við meira öryggi og aðstandendum þínum líður betur að vita af þér í öruggum höndum.

Öryggisvörur
Securitas býður mikið úrval áf vönduðum öryggisvörum til að bæta öryggi einstaklinga og eigna.
Kíktu í vefverslun Securitas og veldu að bæta öryggið hratt og auðveldlega með vönduðum öryggisvörum.
Tenging viðstjórnstöð
Það felst mikið öryggi í því að vera með tengingar við stjórnstöð sem er á vaktinni allan sólarhringinn og bregst hratt og vel við ef boð berast.
Þrautþjálfað starfsfólk Securitas myndar sterka heild sem er umhugað um öryggi þitt og þinna.
Ekki vera með óþarfa áhyggjur. Bókaðu fund með öryggisráðgjafa og komdu öryggismálunum í öruggan farveg og upplifðu hugarró.


