Securitas býður öryggislausnir af öllu tagi sem er ætlað að mæta mismunandi þörfum og öryggiskröfum viðskiptavina.
Í ákveðnum tilfellum er þörf á persónulegri vernd til lengri eða skemmri tíma.
Erlendir gestir á vegum fyrirtækja eða stofnanna gera gjarnan kröfu um að þjálfaðir lífverðir annist sérstaka vernd á meðan heimsókn stendur. eða á meðan þeir sækja ákveðinn viðburð.
Securitas byggir skipulagningu og framkvæmd hvers verkefnis á þeim áherslum sem viðskiptavinir fyrirtækisins leggja upp með hverju sinni.
Því tengt er lögð áhersla á að gestir viðskiptavina séu í tryggum höndum sérþjálfaðra öryggisvarða fyrirtækisins þar sem öryggi, vellíðan og ánægja þeirra er okkar forgangsverkefni.
Lífverðir
Securitas hefur á að skipa lífvörðum sem hlotið hafa faglega þjálfun, bæði erlendis og á Íslandi.
Við aðstæður sem kalla á sérstakar ráðstafanir og vernd mikilvægra aðila er lífvörður frá Securitas lausn sem skapar þjála, trausta og faglega þjónustu í smáum sem stórum verkefnum, bæði til lengri og skemmri tíma.
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.
Karfan þín
Við notum vafrakökur (e. cookies) til að gera upplifun þína af síðunni sem besta, muna innskráningar, stillingar og fleira. Persónuverndarstefna