Securitas á Sjárvarútvegssýningunni 2026

 

Securitas verður á Sjávarútvegssýningunni (IceFish) 2026 í Smáranum dagana 22.–24. september. Þú finnur okkur á bás G23, þar sem við kynnum öryggislausnir fyrir sjávarútveg, fiskeldi, hafnarsvæði og starfsemi um borð í skipum.

Við hjá Securitas leggjum áherslu á lausnir sem hjálpa fyrirtækjum að vernda starfsfólk, búnað og rekstur við krefjandi aðstæður. Við vitum að í sjávarútvegi skipta áreiðanleiki og skjót viðbrögð miklu máli, hvort sem um er að ræða starfsemi á landi, við hafnir, í fiskvinnslu eða um borð í skipum.

Lausnir sem henta krefjandi umhverfi

Aðstæður í iðnaði tengdum sjávarútvegi geta verið krefjandi þar sem salt, raki, hreyfingar og ýmislegt annað geta gert miklar kröfur til bæði starfsfólks og öryggisbúnaðar. Securitas bjóða heildar lausnir fyrir hinar ýmsu aðstæður en þar á meðal eru

brunavarnir, myndavélakerfi, aðgangsstýringar og fjarmyndavötun með tenginu við stjórnstöð Securitas. Allar þessar lausnir hafa það sameiginlegt að aðstoða fyrirtæki að lágmarka tjón ef eitthvað óvænt kemur uppá.

Bruna- og slökkvikerfi

Securitas býður bruna- og slökkvikerfi fyrir sjávarútveginn sem henta meðal annars fyrir fiskvinnslur, vélarrými, tæknirými, kæli- og frystirými og önnur svæði þar sem skjót viðbrögð og réttur búnaður skipta miklu máli.

Meðal lausna er Inergen slökkvikerfi, sem hentar sérstaklega vel þar sem vatn, froða eða duft geta valdið tjóni. Inergen skilur ekki eftir sig leifar, eyðileggur ekki aflann og er hannað til að vera öruggt fyrir starfsfólk á þeim svæðum þar sem kerfið er notað.

Myndavélar og fjarmyndavöktun

Á básnum verða til sýnis myndavélar sem eru hannaðar fyrir erfiðar aðstæður, þar á meðal myndavélar sem þola salt, raka og krefjandi veður, hitamyndavélar, neðansjávarmyndavélar og víðlinsumyndavélar sem gefa betri yfirsýn yfir stór svæði.

Með fjarmyndavöktun getur stjórnstöð Securitas brugðist við boðum í rauntíma, staðfest atvik og dregið úr óþarfa útköllum. Lausnin eykur yfirsýn og getur skipt miklu máli þegar bregðast þarf hratt við. Einnig verður hægt að skoða myndavélaturninn okkar sem er færanlegur og hægt að nýta við ýmis tilefni þegar þörf á auknu myndavélaeftirliti.

Aðgangsstýringar

Aðgangsstýringar hjálpa fyrirtækjum að tryggja að rétt fólk hafi aðgang að réttum svæðum á réttum tíma, hvort sem um er að ræða hafnir, fiskvinnslu, kæligeymslur, tæknirými eða svæði um borð í skipum.

Komdu við á bás G23

Við hvetjum gesti sýningarinnar til að koma við á bás G23 og ræða við sérfræðinga Securitas um lausnir sem henta þeirra rekstri. Við hlökkum til að sjá sem flest í Smáranum 22.–24. september.

Myndeftirlitsturnar Securitas studdu við öryggi á Ljósanótt

Um nýliðna helgi var Securitas með tvo færanlega myndeftirlitsturna á hátíðarsvæði Ljósanætur í Reykjanesbæ. Turnarnir voru lánaðir hátíðinni sem styrkur frá Securitas, með það að markmiði að styðja við öryggi hátíðargesta og aðstoða lögreglu með betri yfirsýn yfir svæðið á einum stærsta og fjölmennasta viðburði ársins á Suðurnesjum.

Viðburðir á borð við Ljósanótt kalla á öryggislausnir sem hægt er að setja upp hratt, færa til eftir þörfum og aðlaga að aðstæðum hverju sinni. Færanlegir myndeftirlitsturnar eru einmitt hannaðir með slíkan sveigjanleika í huga og henta vel þar sem tímabundið þarf að auka yfirsýn og öryggi, til dæmis á tónleikum, útihátíðum, framkvæmdasvæðum og öðrum fjölmennum svæðum.

Betri yfirsýn og skjótari viðbrögð
Myndeftirlitsturnarnir eru búnir bæði föstum og hreyfanlegum myndavélum sem auðvelda yfirsýn yfir stór eða fjölfarin svæði. Með slíkri tækni er hægt að styðja við skjótari viðbrögð ef óvæntar aðstæður koma upp, greina aðstæður betur og beina réttum viðbragðsaðilum á réttan stað þegar þess þarf.

Á Ljósanótt var lögreglan á Reykjanesi með tengingu við turnana og gat þannig nýtt sér aukna yfirsýn á hátíðarsvæðinu. Securitas býður einnig upp á tengingu við stjórnstöð Securitas, sem getur verið mikilvægur hluti af öryggislausn fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og skipuleggjendur viðburða.

Sveigjanleg lausn án umfangsmikillar uppbyggingar
Styrkur færanlegra myndeftirlitsturna felst meðal annars í því að hægt er að koma þeim hratt fyrir þar sem þörfin er mest hverju sinni. Þannig má auka öryggi og yfirsýn tímabundið án þess að ráðast í umfangsmikla og kostnaðarsama uppbyggingu á svæðinu.

Notkun turnanna á Ljósanótt er gott dæmi um hvernig nútímalegar öryggislausnir geta stutt við öruggt og vel skipulagt viðburðahald. Með réttri tækni, góðu samstarfi og skýrri yfirsýn er hægt að skapa öruggara umhverfi fyrir gesti, starfsfólk og viðbragðsaðila.

Frekari upplýsingar um myndeftirlitsturnana má finna hér.