SKJÁLAUSNIR

 
Securitas býður upp á fjölbreytt úrval af LED skjáum og auglýsingaskjám sem henta jafnt innanhúss sem utanhúss. Hvort sem um er að ræða skjá í verslunarglugga, móttöku, verslunarmiðstöð eða utaná húsnæði. 

Skjálausnir fyrir fyrirtæki

LED skjálausnir fyrir öll rými

Lausnir sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Skjáina er hægt að fá sem: 

  • Frístandandi
  • Veggfesta
  • Gluggaskjái
  • Utanhúss
  • Stafrænar auglýsingatöflur
  • Sérsniðna í réttri stærð
samsettir skjáir

LED skjáir fyrir innan- og utanhússnotkun

LED skjáir skapa áhrifaríka og lifandi upplifun með skörpum myndgæðum og líflegum litum. Lausnirnar henta bæði inni og úti og eru mikið notaðar þar sem mikil sýnileiki og sterk framsetning skipta máli.

led skjáir

Notendavænt kerfi

Einföld stjórnun efnis

Notendavænt kerfi gerir kleift að setja inn myndir, myndbönd og skjöl og birta efni á stafrænum skjám á einfaldan hátt. Hægt er að skipuleggja birtingu eftir tíma dags og stjórna einum eða mörgum skjám samtímis úr sama kerfi.

Kerfið styður fjölbreytt skráarsnið eins og myndir, myndbönd og PDF skjöl og gerir auðvelt að halda efni lifandi og síbreytilegu. Innbyggt hönnunartól gerir einnig kleift að búa til efni beint í kerfinu eða hlaða inn efni úr öðrum forritum.

Sérsniðnar lausnir

Sérfræðingar Securitas bjóða viðskiptavinum upp á sérsniðnar lausnir eftir þörfum og markmiðum hvers og eins.

Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.