Myndvörn

Skýrari mynd af aðstæðum í rauntíma sem tryggja hraðari og rétt viðbrögð

Þegar myndavélar greina innbrot eða annað atvik fær stjórnstöð Securitas strax aðgang að myndum og lifandi myndstreymi 15 min fyrir og eftir atburð til að meta aðstæður og bregðast hratt við.

Sambyggt innbrotakerfi frá Securitas

Skjót viðbrögð með rauntímaupplýsingum

Við boð frá öryggiskerfi birtast myndir og lifandi myndstreymi strax í stjórnstöð Securitas. Starfsfólk getur skoðað myndefni allt að 15 mínútum fyrir og eftir atvik ásamt því að fylgjast með í rauntíma.

Þannig er hægt að meta hratt hvort um raunverulega hættu eða falsboð sé að ræða og grípa til viðeigandi aðgerða án tafar ásamt því að minnka kostnað vegna óþarfa útkalla. 

Viðbrögð stjórnstöðvar

Stjórnstöð Securitas er vöktuð allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þegar atvik á sér stað getur starfsfólk brugðist strax við, kallað út viðeigandi viðbragðsaðila eða haft samband við lögreglu ef þörf krefur.

Einnig getur stjórnstöð metið hvort um raunatvik sé að ræða og komið í veg fyrir óþarfa útkall og kostnað ef um falsboð ræðir. 

Aðgangur stjórnstöðvar að myndefni er takmarkaður og aðeins virkur með samþykki viðskiptavinar. 

Stjórnstöð fjarmyndaeftirlit

Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.