RAFRÆNT EFTIRLIT
Öryggismyndavélar geta skipt sköpum í öryggi og rekstri fyrirtækja. Securitas býður háþróaðar öryggismyndavélar með fjölbreytt eiginleika sem standast ströngustu gæðakröfur.
RAFRÆNT EFTIRLIT
PERSÓNUVERND
Við notkun á eftirlitsmyndavélum gilda persónuverndarlög og þurfa þeir sem eru með rafrænt eftirlit að hafa skýran og málefnalegan tilgang vegna notkunar.
Almennt má ekki varðveita efni rafrænnar upptöku lengur en í 30 daga.
Upplýsa þarf einstaklinga sem sæta vöktun að vöktun sé á svæðinu. Hægt er að nálgast upplýsingar og leiðbeiningar um notkun og meðferð eftirlitsmyndavéla á heimasíðu Persónuverndar.
Hægt er að nálgast leiðbeiningar og sniðmát frá Persónuvernd sem nýta má til fræðslu og merkingar hérna.
Sniðmát fyrir merkingar dæmi 1
Sniðmát fyrir merkingar dæmi 2
Sniðmát fyrir fræðslu rafrænnar vöktunar
Hægt er að hafa samband við Securitas um sniðmát með lógó Securitas.
Í nýju ljósi
Sífellt fleiri fyrirtæki nýta sér tækninýjungar í öryggismyndavélum og myndavélakerfum til ýmiskonar greininga. Með vel útfærðum myndavélalausnum er hægt að greina breytingar á hitastigi og sjá umferð um ákveðin svæði á hitakorti svo eitthvða sé nefnt.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í myndeftirliti
Oddsteinn Örn Björnsson
Viðskiptastjóri
Gestur Guðjónsson
Viðskiptastjóri
Frímann Viðarsson
Viðskiptastjóri