Eftirlitsmyndavélar
Eftirlitsmyndavélar geta skipt sköpum í öryggi og rekstri fyrirtækja. Securitas býður háþróaðar eftirlitsmyndavélar með fjölbreytt eiginleika sem standast ströngustu gæðakröfur.
Eftirlitsmynda
vélar
Fjölhæfar eftirlitsmyndavélar
Helstu eftirlitsmyndavélar
Hér á þessari síðu eru upplýsingar um mismunandi gerðir og eiginleika eftirlitsmyndavéla. Eftirlitsmyndavélum er skipt í 6 megin flokka en fjölhæfar vélar geta tilheyrt fleiri en einum flokk.
ÚTIMYNDAVÉLAR
Innimyndvélar
Hreyfanlegar
Kúlumyndavélar
Nætursjón
HITAMYNDAVÉLAR

Útimyndavélar
Eftirlitsmyndavélar til notkunar utanhúss þurfa að vera með dag/nótt virkni. Þegar birtustig fer niður fyrir ákveðið stig skiptir myndavélin frá lit yfir í svart/hvíta mynd.
Myndavél í svart/hvítum ham er mun ljósnæmari en myndavél í lit og nær hún því betri myndum í myrkri. Einnig er mikilvægt að myndavélarnar séu í húsi sem verndar þær gegn veðri og vindum.
Vegna breytilegs birtustigs utandyra er æskilegt að velja myndavél með sjálfvirku ljósopi (Auto Iris). Slík vél ræður betur við breytilegt birtustig.

Innimyndavélar
Eftirlitsmyndavélar sem hentar innandyra. Í ákveðnum tilfellum er hægt að fella þær inn í loft og veggi. Fáanlegar með hljóðnema, og hátalara fyrir gagnvirk samskipti.

Kúlumyndavélar
Vinsælar og fjölhæfar eftirlitsmyndavélar með vítt sjónsvið. Myndavélar sem eru hýstar í hálfkúlu húsi einnig þekktar undir heitinu Dome myndavélar. Hægt að stilla sjónarhorn í hvaða átt sem er. Oft með góða vörn fyrir höggum og fikti.
fjölhæfar myndavélar
Sjáðu alla myndina
Eftirlitsmyndavélakerfi eru samsett þremur þáttum. Einn þessara þátta eru eftirlitsmyndavélar sem valdar eru eftir eiginleikum sínum til að ná myndum við ólíkar aðstæður.

Hreyfanlegar
Notandi eða stjórnstöð getur stýrt hreyfanlegum eftirlitsmyndavélum í rauntíma í gegnum nettengingu eða gsm samband. Hreyfanlegar eftirlitsmyndavélar bjóða gjarnan upp að hægt er að snúa þeim og nýta aðdráttarlinsu til að ná mynd af því sem óskað er. Gjarnan notaðar á stærri svæðum og við fjarmyndaeftirlit.
AUKNAR KRÖFUR
Öryggisgæsla hjá fyrirtækjum verður sífellt viðameiri og mikilvægari. Þróun á myndavélakerfum er hröð og auknar kröfur eru stöðugt gerðar til þeirra verkefna sem þær eiga að leysa.
Hjá Securitas starfa reynslumiklir ráðgjafar sem elska að takast á við áskoranir og byggja upp öflugar heildarlausnir með þínu fyrirtæki.


Nætursjón
Það sem augað ekki sér í myrkrinu geta myndavélar með nætursjón greint. Tæknin sem er beitt er ýmist infrarauðir geislar eða myndavélar sem magna upp ljósmagn. Hitamyndavélar gefast einnig vel við eftirlit að næturlægi eða þar sem birta er lítil.


Hitamyndavélar
Hitamyndavélar geta greint hita bæði frá lifandi verum og búnaði. Þessar myndavélar eru gjarnan notaðar til þess að greina umferð lifandi vera en einnig mjög vinsælar við eftirlit með búnaði þar sem þær geta greint ofhitnun á búnaði og komið af stað boðum sem geta leitt til sjálfvirkrar stöðvunar búnaðar eða gert stjórnstöð og eða viðbragðsaðilum viðvart.
Hitamyndavélar gefast einnig vel við eftirlit að næturlægi eða þar sem birta er lítil.
SJÁÐU ALLA SÖGUNAÍ LIT
Securitas býður vandað úrval af eftirlitsmyndavéla með fjölbreytta eiginleika. Flestar bjóða upp á myndefni í lit og við erfið birtuskilyrði.
Í nýju ljósi
Sífellt fleiri fyrirtæki nýta sér tækninýjungar í öryggismyndavélum og myndavélakerfum til ýmiskonar greininga. Með vel útfærðum myndavélalausnum er hægt að greina breytingar á hitastigi og sjá umferð um ákveðin svæði á hitakorti svo eitthvða sé nefnt.
Hentugasta uppröðunin
Vöruflæði
Með myndgreiningu er m.a. hægt að sjá hvernig umferð flæðir um vöruhús. Mikilvægar upplýsingar sem geta nýst við skipulagningu vöruhúsa.
Hvar stoppa viðskiptavinirnir?
Hitakort í verslun
Nútíma öryggismyndavélar og myndgreining gera okkur kleift að greina hegðun fólks. Hvar kemur fólk saman, hvaða leið ganga viðskiptavinir um verslunina o.s.frv.
Hvernig er álagið
Hitamyndir
Með hitamyndum er hægt að greina álag á t.d. vélbúnað og tæki. Þannig er hægt að bregðast við ofhitnun og koma í veg fyrir skemmdir.




Eftirlitsmyndavélar tengjast upptökukerfum
Hluti af þríþættu myndavélakerfi
Eftirlitsmyndavélar geta ekki staðið einar og sér. Þær þurfa að tengjast miðlægu stjórnkerfi eða upptökubúnaði. Við upptökubúnaðinn er einnig sett upp myndbirting og myndgreining. Þannig mynda þessir þættir öflug eftilitsmyndavélakerfi.
Upptökubúnaður
Öruggt myndefni
Öryggismyndavélar
Margar gerðir
Myndgreining
Hver og hvað
Eftirlitsmyndavélar
100.423 kr.
68.324 kr.
55.483 kr.
95.480 kr.
8.364 kr.
85.512 kr.
3.184 kr.
44.778 kr.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í myndeftirliti


Oddsteinn Örn Björnsson
Viðskiptastjóri


Gestur Guðjónsson
Viðskiptastjóri


Frímann Viðarsson
Viðskiptastjóri