Heimavörn allt snjallt í einu appi öryggiskerfi þjófavarnarkerfi fyrir heimili

Snjöll öryggislausn fyrir nútímaheimili

Hafðu samband og pantaðu heimavörn sem sniðin er að þínum þörfum. Allt í einu appi og enginn binditími.

Lífsgæði og hugarró

Heimavörn er snjöll öryggislausn fyrir nútímaheimili. Með appinu getur þú fylgst með og stjórnað öryggiskerfinu og aukahlutum ásamt því að kveikja og slökkva á ýmsum raftækjum heimilisins eða stýra notkun þeirra með snjalltengjum.

Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan sólarhringinn og fylgist með boðum frá kerfinu.

Ertu nú þegar með Heimavörn?

Kíktu yfir á þjónustusíðuna þar sem þú getur nálgast allar notendaupplýsingar og viðbótarbúnað.

Fáðu nýjan og fullkominn  snertiskjá fyrir stjórnborðið.

Heimavörn Securitas stjórnstöð LED skjár

Auðveldara og skemmtilegra

Fjölmargar leiðir til að gera lífið auðveldara og skemmtilegra með Heimavörn

Heimavörn stjórnstöð með LED skjá á heimili

Algeng uppsetning á Heimavörn

  • Stjórnstöð með snertiskjá
  • App og vefviðmót
  • Reykskynjarar í öll svefnherbergi
  • Vatnsnemar við uppþvottavél og í þvottahúsi
  • Hreyfiskynjarar í öllum rýmum þar sem hægt er að komast inn í húsið
  • Hurðarnema/segulrofar við allar hurðir og stærstu glugga
  • Snjalltengi fyrir heimilistækin og lampa
  • Uppsetning og kennsla

Hagstæð leiga

Þú velur hvað þú vilt hafa í þinni Heimavörn og greiðir mánaðarlega leigu fyrir allan búnað og tengingu við stjórnstöð sem er á vakt allan sólarhringinn allan ársins hring. Stofnkostnaður er 32.900kr 

Ef þú vilt bæta við búnaði síðar þá er það mjög einfalt þú lætur okkur vita hverju þú vilt bæta við og tæknisérfræðingur frá Securitas kemur og setur hann upp fyrir þig.

Heimavörn

Grunnpakki
kr 10690 á mánuði
  • Tenging við stjórnstöð allan sólarhringinn
  • Viðbragðsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn
  • Stílhreinn 7" snertiskjár
  • 7 öryggisskynjarar að eigin vali - Hurða-, hreyfi-, reyk- og vatnsskynjarar
  • Viðhald á leigðum búnaði
  • Uppsetning af fagfólki
  • Enginn binditími
  • Allt í einu appi

Viltu panta Heimavörn?

Smelltu á hnappinn, fylltu út formið og öryggisráðgjafi mun aðstoða þig við að finna bestu Heimavörnina fyrir þig.

Hvar sem þú ert

ALLT SNJALLT Í EINU APPI

HJARTAÐ Í HEIMAVÖRN

Hjartað í Heimavörn liggur í appinu. Þaðan getur þú stýrt öllum aðgerðum með símanum eða í tölvunni hvar sem þú ert í sambandi á annað borð og fengið margs konar tilkynningar og áminningar sjálfkrafa.

Appið er á íslensku, það er einfalt og þægilegt í notkun og öryggismál og dulkóðanir eru í flokki með því öflugasta sem þekkist. Hafðu auga með heimilinu og stjórnaðu aðgerðum í þægilegu og einföldu viðmóti í appinu hvar sem þú ert, hvenær sem er. Stjórnstöð Securitas er síðan á vaktinni allan sólarhringinn og bregst við ef boð berast frá kerfinu.

Notendur geta einnig verið með
Sumarhúsavörn og Firmavörn allt í sama appi með Heimavörn.

SÆKTU APPIÐ

Sæktu appið fyrir Android eða iOS með því að smella á viðeigandi hnapp.

FLÝTIVAL

Í appinu getur þú sett upp mismunandi flýtival til að stilla kerfi og tengdan búnað með einni snertingu. Þannig getur þú við heimkomu til dæmis tekið öryggiskerfið af, kveikt ljós, slökkt á eftirlitsmyndavél ef heimilið er þannig útbúið.

Heimavörn er tengd stjórnstöð Securitas

 

Í stjórnstöð Securitas vakta reyndir öryggisverðir öll boð og virkja öflugt viðbragðsafl í samræmi við þau boð sem berast allan sólarhringinn allan ársins hring.

0
Öryggisbílar
0
Allan sólarhringinn

Að velja öryggisbúnað fyrir heimilið

Reyndir öryggisráðgjafar Securitas eru þér ávallt innan handar að velja öryggisbúnað hvort sem það er í upphafi eða ef þú vilt bæta við búnaði síðar.

En til að áætla hvað þarf fyrir þitt heimili þá eru hér einfaldar leiðbeiningar hvernig hægt er að áætla þann öryggisbúnað sem mikilvægt er að hafa á heimilinu.

Reykskynjarar

Reykskynjarar

Öruggast er að vera með reykskynjara í öllum rýmum en svefnherbergi eru efst á forgangslistanum. Næst eru rými með raftækjum sem bera með sér aukna eldhættu.

Hreyfiskynjarar

Hreyfiskynjarar

Gott er að staðsetja hreyfiskynjara í öll rými þar sem mögulega er hægt að komast inn í húsnæði.

Hurðaskynjarar

Hurðaskynjarar

Bæði til að fylgjast með hvort hurðir eru opnar eða lokaðar og hvenær var gengið um þær.

Vatnsskynjarar

Vatnsskynjarar

Vatnstjón eru algeng á heimilum. Með því að setja vatnsskynjara á þá staði þar sem líkurnar eru mestar á vatnsstjóni s.s. við uppþvottavélar og þvottavélar, minnka líkurnar á tjóni verulega.

Gasskynjarar

Gasskynjarar

Ef það er gaseldavél á heimilinu þá er mikilvægt að vera með gasskynjara á völdum stöðum.

Snjalltengi

Snjalltengi

Með snjalltengi er hægt að kveikja og eða slökkva á rafmagnstækjum og ljósum með sjálvirkum tímastilltum hætti. Einnig er mögulegt að kveikja og slökkva handvirkt í gegnum appið.

Ljósastýring

Ljósastýring

Til að stjórna kveikingu og dimmun á ljósum með sjálfvirkum tímastillingum eða handvirkt í gegnum appið.

Hitanemar

Hitaskynjarar

Hitanemar geta reynst vel til að fylgjast með hitastigi á heimilinu sérstaklega þegar um lengri fjarveru er um að ræða.

Dyrasímar

Dyrasímar

Aukin þægindi og öryggi með dyrasíma með myndavél þar sem hægt er að sjá hver er við dyrnar og tala við í gegnum appið.

Stjórnborð

Stjórnstöð

Valið er um eina eða fleiri stjórnstöðvar með eða án LED snertiskjá til að sýna og stjórna aðgerðum í Heimavörn.

Öryggismynda
vélar

Öryggismynda
vélar

Bæði úti og inni. Hægt er að velja öryggismyndavélar til að vera með úti og inni bæði til taka upp og eins til að fylgjast með stöðunni í gegnum appið.

Lyklalaust aðgengi

Lyklalaust aðgengi

Stafrænir raflásar fyrir snertilaust aðgengi. Hurðalæsingin er opnuð með snjallsímanum.

INNBROTAVÖRN

Þú velur hreyfiskynjara eftir þörfum og hægt er að fá þá bæði með og án myndavélar eða sérhannaða fyrir gæludýr. Hurða- og gluggaskynjarar láta vita ef eitthvað er opið sem ætti að vera lokað, til dæmis svalahurð eða svefnherbergisgluggi.

BRUNAVÖRN

Reykskynjarar eru sítengdir stjórnstöð Securitas sem er alltaf á vaktinni. Þannig er hægt að bregðast við brunaviðvörunum hvort sem einhver er á vinnustaðnum eða ekki.

Eldsvoðar ógna bæði lífi og verðmætum. Með brunavörn Securitas margfaldar þú öryggi fyrirtækisins og starfsfólksins.

VATNSLEKAVÖRN

Vatnsleki getur valdið gríðarlegu fjárhagslegu og tilfinningalegu tjóni með eyðileggingu verðmæta. Það skiptir sköpum að fá samstundis boð ef vatn byrjar að flæða frá lögnum, krönum, þvottavél eða ísskáp.

SNJALLTENGI

Með snjalltengi getur þú stýrt notkun einstakra raftækja svo sem ljósa og lampa, eldhústækja, sjónvarpa, hljómtækja eða hverju því sem gengur fyrir rafmagni. Hægt er að gera flýtival fyrir snjalltengin eða hafa þau í svæðisskipunum og í raun takmarkast notkunarmöguleikarnir við lítið annað en hugmyndaflugið.

FLÝTIVAL

Í appinu getur þú sett upp mismunandi flýtival til að stilla kerfi og tengdan búnað með einni snertingu.

Þannig getur þú við opnun tekið öryggiskerfið af, kveikt ljós, breytt virkni myndavéla og stillt hita ef heimilið er þannig útbúið.

Fleiri möguleikar

MYNDEFTIRLIT

Hægt er að fá mismunandi úti- og innimyndavélar fyrir Heimavörn.
Myndavélar með hreyfiskynjurum sjá til þess að ekkert fari fram hjá vökulu auga kerfisins sem sendir þér myndskeiðin beint í símann eða annað snjalltæki. Notandi hefur fulla stjórn á kerfinu og aðgangi að því. Myndeftirlit í Heimavörn uppfyllir alla nauðsynlega öryggisstaðla og fylgir persónuverndarlögum í hvívetna.

DYRABJALLA

Hægt er að fá dyrabjöllu tengda við Heimavörn. Notaðu appið til að sjá hver hringir bjöllunni og svaraðu viðkomandi hvar sem þú ert í heiminum. Með lásastýringu getur þú einnig opnað og hleypt viðkomandi inn.

LÁSAR OG AÐGANGSSTÝRING

Hægt er að fá rafræna lása á útihurðir og bílskúrshurð svo þú getir stjórnað aðganginum að heimili þínu á einfaldan hátt. Þannig getur þú opnað og lokað einstökum dyrum með appinu þótt þú sért víðs fjarri. Þú
getur hleypt barninu inn ef það gleymir lyklunum eða opnað ef vinur eða fjölskyldumeðlimur kemur til að fá lánaða háþrýstidælu úr bílskúrnum.

HITANEMAR

Hægt er að fá hitanema sem skynja hitastig hvort sem er inni eða úti, eða á svæðum sem þarfnast sérstakrar aðgátar. Þú færð áminningar, aðvaranir eða skýrslur beint í símann eða tölvuna hvar og hvenær sem
þér hentar.

LJÓSASTÝRING

Með snjalltengjum getur þú stjórnað einstökum ljósum og lömpum. Einnig er hægt að fá stjórnbúnað inn í rofa sem gefur möguleika á flóknari stýringu. Með flýtivali getur þú stjórnað lýsingu í einstökum
vistarverum eða íbúðinni allri og með svæðisskipunum getur þú látið kerfið virkja lýsingu sjálfvirkt samkvæmt fyrirfram gefnum forsendum.

Veldu búnaði fyrir Heimavörn

Öryggisráðgjafar Securitas eru alltarf reiðubúin að aðstoða við val á búnaði. Í upphafi er valinn búnaður sem uppfyllir þarfir og óskir á hveru heimili. Eftir að Heimavörn er komin upp er auðvelt og einfalt að bæta búnaði samkvæmt þínum óskum.

UPPSETNING Í HÖNDUM FAGFÓLKS

Allur búnaður er settur upp af sérþjálfuðu tæknifólki til að tryggja öryggi og gæði kerfisins. 

Ræddu við ráðgjafa okkar um þá fjölbreyttu möguleika
sem Heimavörn býður upp á og hvernig hún getur aukið öryggið og lífsgæðin á heimilinu.

Notendur geta m.a. athugað hvenær starfstöð var opnuð og/eða lokað auk þess að fylgjast með öllu sem skiptir máli í gegnum eitt app. 

Hafðu samband við sérfræðinga okkar

Hafþór Theódórsson hjá Securitas Hafþór Theódórsson hjá Securitas lit

Hafþór Theódórsson

Öryggisráðgjafi

Heiða Björk Júlíusdóttir hjá Securitas Heiða Björk Júlíusdóttir hjá Securitas

Heiða Björk Júlíusdóttir

Öryggisráðgjafi

David Trevor hjá Securitas David Trevor hjá Securitas

David Trevor

Öryggisráðgjafi

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Algengar spurningar og svör

Kerfið frá Alarm.com er með bestu öryggisstaðla sem boðið er upp á vegna slíkra kerfa. Um 9 milljónir viðskiptavina í Evrópu og Ameríku nota kerfið daglega.

Appið, líkt og bankaöpp og fleiri slík sem vinna með viðkvæmar fjárhagslegar eða persónulegar upplýsingar, er varið með kóða eins og venjulegt öryggiskerfi. Þó að notandi týni símanum þá getur annar notandi ekki komist inn í kerfið.

Hægt er að gefa eins mörgum fjölskyldumeðlimum aðgang að kerfinu og þurfa þykir. Það kostar ekkert aukalega því aðeins er eitt gjald fyrir hvert heimili/stað. Hægt er að veita tímabundinn aðgang eða fullan og ótakmarkaðan, allt eftir óskum þess sem skráður er fyrir kerfinu.

Apple snjalltæki þurfa að hafa iOS 8.0 stýrikerfi eða nýrra. Það eru símarnir iPhone 4s og nýrri, iPad mini og iPad 2 og nýrri.

Heimvörn styður öll Android tæki síðustu fjögurra ára sem og mörg sem eru eldri en það.

Snjalltengi eru millistykki sem sett eru á rafmagnstæki sem viðkomandi vill stjórna, svo sem á ljós, ofn, kaffivél eða sjónvarp sem síðan er stjórnað með appinu.

Hægt er að stilla á ýmsa sjálfvirkni á borð við að slökkva og kveikja á ákveðnum tímum eftir að öryggiskerfi hefur verið sett á vörð eða á ákveðnum tímum sólarhringsins.

Kerfið vinnur á GSM og heldur allri öryggisvirkni þó að Internetið sé niðri. Samband við myndavélar gæti hins vegar rofnað.

Skynjarar eru stilltir eftir aðstæðum hvers heimilis, hægt er að fá sérstaka gæludýraskynjara og hreyfiskynjara sem taka myndir og senda í síma notanda.

Nei, Sumarhúsavörn+ byggir á GSM og 4G kerfi.

Alarm.com varð fyrir valinu sem samstarfsaðili Securitas. Þetta bandaríska fyrirtæki þjónar um 6 milljónum viðskiptavina og fellur vel að þeim öryggiskröfum sem Securitas gerir til samstarfsaðila. Kerfið þeirra uppfyllir alla evrópska öryggisstaðla og lög um persónuvernd.

Það fer eftir óskum viðskiptavinar, en í grunninn er alltaf öryggiskerfi, tengt stjórnstöð Securitas sem bregst við öllum nauðsynlegum aðstæðum. Innifalið í mánaðargjaldi er App og vefþjónusta á íslensku (eða því tungumáli sem óskað er eftir). Tæknimenn Securitas sjá um uppsetningu á kerfinu og því fylgir að sjálfsögðu ábyrgð. Við kerfið er svo hægt að bæta við, bæði eftir þörfum en eins er þetta byggt á kerfi sem er stöðugt í þróun og sífellt bætast við skemmtilegir og nytsamir hlutir sem einfalda notenda lífið.

Já, Heimavörn er í grunninn öryggiskerfi með allri þeirri þjónustu sem því fylgir hjá Securitas: stjórnstöð sem er á vakt allan sólarhringinn alla daga ársins, viðbragðsafli og þjónustu frá sérþjálfuðum öryggisvörðum. Öryggisverðir fara á bílum um þjónustusvæði Securitas víðs vegar um landið þar sem „okkar vakt lýkur aldrei“. Appið er hluti af öryggiskerfinu og þeirri þjónustu sem mánaðargjaldið felur í sér.

Nei, hægt er að hafa hvoru tveggja og velja á milli eftir hentugleika.

Grunnpakkinn Heimavörn samanstendur af:

  • Öryggiskerfi
  • Beinir (router, innifalinn í mánaðargjaldi)
  • Lyklaborði/talnaborði
  • App og vefviðmót
  • Reykskynjara
  • Vatnsnema
  • Hreyfiskynjara  
  • Hurðarnema/segulrofa
  • Snjalltengi
  • Uppsetningu og kennslu
  • Hvert kerfi er sett upp miðað við þarfir viðkomandi heimilis og notenda.

Fáðu ókeypis aðstoð ráðgjafa

Ræddu við ráðgjafa okkar um þá fjölbreyttu möguleika sem Heimavörn býður upp á og hvernig hún getur aukið öryggið fyrir heimilið. Í sameiningu finnum við lausnina sem hentar þínu heimili.

HAFÐU SAMBAND

580-7000