COVIDPRÓF sem er einfalt og þægilegt munnvatnspróf í 4 skrefum sem hentar til notkunar á vinnustöðum, stofnunum eða félagasamtökum. Tilvalin lausn hvar sem hópar koma saman og smit hafa áhrif á rekstur og aðra starfsemi.
Prófin gefa mjög góða svörun og sterkar vísbendingar um hvort einstaklingur sé smitaður eða ekki. Prófin eru sjálfspróf og mjög hentug til fyrirbyggjandi aðgerða enda einföld í framkvæmd.
Ef prófið reynist jákvætt skal í öllum tilfellum fara í staðfesta skimun á viðurkenndum sýnatökustöðum.
Athugið að þessi próf koma þó ekki í staðin fyrir viðurkennda einkennasýnatöku og neikvætt próf gefur ekki vottorð til ferðalaga.
Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sérfræðinga okkar þér að kostnaðarlausu.