Ráðgjöf í öryggismálum

Í stórum hópi starfsmanna Securitas er að finna starfsmenn með áralanga og víðtæka reynslu á sviði öryggismála. Margir þessara starfsmanna eru meðal fremstu sérfræðinga á sínu sviði og hafa því verið fengnir til ráðgjafastarfa og til þess að sitja í ráðum og nefndum sem fjalla um hvers konar öryggismál í samfélaginu.

Securitas getur boðið ráðgjöf á ýmsum sviðum öryggismála án þess að því fylgi nokkur skuldbinding um að búnaður eða þjónusta sé keypt af fyrirtækinu.

  • Heildaröryggi í fyrirtækjum og stofnunum
  • Öryggisstefna, markmið, leiðir og innleiðing
  • Öryggishandbækur
  • Öryggisnámskeið
  • Fræðsla starfsfólks
  • Viðbragðsáætlanir
  • Ráðgjöf um uppsetningu rýma í öryggislegum tilgangi
  • Gerð áhættumats fyrir innra og ytra umhverfi vinnustaðar