Gæsla

Öryggisverðir Securitas eru að störfum allan sólarhringinn, alla daga ársins. Allir öryggisverðir Securitas eru þjálfaðir í skyndihjálp, meðferð slökkvitækja og fleiri sérhæfðra námskeiða, auk þess sem stór hópur situr vikulega námskeið á vegum tæknisviðs Securitas. Þar er farið yfir meðferð og notkun tæknibúnaðar sem fyrirtækið selur og þjónustar.

Þörf fyrir þessa þjónustu hefur aldrei verið eins mikil og hún er í dag. Sífellt fleiri sjá kosti þess að hafa þjálfaða öryggisverði til staðar í fyrirtækjum sínum, til þess að auka öryggi starfsmanna og viðskiptavina.
  
Securitas stundar daglega verðmætaflutninga, þar sem tekin er full ábyrgð á þeim verðmætum sem flutt eru á hverjum tíma. Víða er tekin óþarfa áhætta í tengslum við flutning á verðmætum. Securitas hefur jafnframt, í samvinnu við erlend öryggisfyrirtæki, tekið að sér öryggisflutninga til og frá landinu.

Hafðu samband við öryggisráðgjafa og fáðu nánari upplýsingar í síma 580 7000.

 

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070