Reykjanes

Í byrjun árs 2009 opnaði Securitas skrifstofu á Reykjanesi, nánar tiltekið að Hafnargötu 60 í Keflavík. Skrifstofunni, sem daglega er nefnd Securitas Reykjanesi, er ætlað að bæta þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins á Reykjanesi og fjölga þeim.

Starfsvettvangur skrifstofunnar eru fyrirtæki og heimili í öllum sveitarfélögum og athafnasvæðum vestan Straumsvíkur þ.e. Vatnsleysuströnd, Vogar, Grindavík, Hafnir, Reykjanesvirkjun, Ásbrú, Innri-Njarðvík, Ytri-Njarðvík, Keflavík, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Helguvík, Garður, Sandgerði og Stafnes.

Starfsmenn Securitas Reykjanesi eru 15 talsins og á meðal þeirra eru öryggisverðir, tæknimenn, sölumenn o.fl.

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070