HEIMAVÖRN SECURITAS
- veldu öryggi í stað áhættu
Securitas hefur ætíð verið í fararbroddi þegar kemur að öryggisvörnum heimilisins. Heimavörn Securitas vaktar heimilið allan sólarhringinn, allan ársins hring. Heimavörnin er beintengd Stjórnstöð Securitas þar sem við erum ávallt í viðbragðsstöðu. Þannig getur þú verið viss um að réttir aðilar koma samstundis á staðinn ef eitthvað kemur uppá hjá þér og þinni fjölskyldu.
VAKT
Stöðug vakt er í stjórnstöð og starfsfólk bregst samstundis við ef eitthvað bjátar á.
INNBROTAVIÐVÖRUN
Hreyfiskynjarar og skynjarar á hurðir og glugga nema ef óæskilegur umgangur er um heimilið og sírena gerir viðvart. Heimilið er í öruggum höndum Securitas og þú getur verið áhyggjulaus hvort sem þú ert heima eða að heiman.
BRUNAVÖRN
Reykskynjarar eru stöðugt tengdir víðtæku öryggisneti Securitas.
ENGINN STOFNKOSTNAÐUR
Þú greiðir engan stofnkostnað þegar þú færð þér Heimavörn Securitas. Við komum með kerfið á staðinn og setjum það upp, hratt og örugglega. Þú greiðir einungis mánaðarlegt þjónustugjald sem felur í sér fjarvöktun kerfisins, viðhald þess og útköll öryggisvarða, hvenær sólarhringsins sem er, alla daga ársins.
STAÐALBÚNAÐUR Í HEIMAVÖRN
2 x hreyfiskynjarar
1 x reykskynjari
1 x hurðarnemi
Stjórnborð
Sírena
Stjórnstöð
Uppsetning
Hægt er að bæta við eftirfarandi aukabúnaði til viðbótar í Heimavörnina:
Vatnskynjara
Gasskynjara
Fjarstýringu
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu heimili.