Skip og bátar

Hvort sem þú ert með bát eða skip býður Securitas mikið úrval af öryggisbúnaði sem hentar þínum þörfum. Líkt og skrifstofur fyrirtækisins hafa skip þess fullkomið öryggiskerfi, með brunavörnum og slökkvitækjum. Slökkvikerfi fyrir vélarrými hafa margoft sannað gildi sitt og gildir þá einu hvort um sé að ræða vélarrými í togara eða smábát.

  • Slökkvikerfi
    Frá vatnabátum og upp í frystitogara. Slökkvikerfinu er komið fyrri í vélarrými skipsins. Þegar vart verður elds í rýmini, fyllir það rýmið af slökkvigasi, sem er hættulaust mönnum og dýrum, en kæfir allan eld með því að lækka súrefnismagnið í rýmini niður fyrir þau mörk sem eldur þarf til að viðhalda sér.
     
  • Brunavarnir
    Securitas býður allar gerðir slökkvibúnaðar, svo sem slökkvitæki, teppi, slöngur, merkingar og ljós. Allt sem þú þarft á einum stað.
     
  • Öryggiskerfi
    Fullkomið öryggiskerfi vaktar skipið og sendir boð til vaktstöðvar, eða annarra aðila, gegnum MNT eða GSM fjarskiptakerfi og tryggja þannig vöktun á flestum stöðum í heiminum. 
     
  • Eftirlit
    Tæknimenn Securitas eru vottaðir af Siglingastofnun Íslands, sem úttektaraðilar fyrir brunaviðvörunarkerfi og slökkvitækja skipa og báta.

Margra ára reynsla og hágæða vara tryggir lægri viðhalds- og rekstrarkostnað, samhliða bættu öryggi um borð.

Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securirtas í síma 580 7000 og fáðu nánari upplýsingar um þær öryggislausnir sem henta þér.

 

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070