Um Securitas

Í forystu í rúman aldarfjórðung
Securitas var stofnað árið 1979. Fyrstu verkefnin voru öryggisgæsla fyrir ýmsa aðila í Smiðjuhverfinu í Kópavogi. Síðar var stofnuð ræstingaþjónusta Securitas og sinnti félagið þessum tveimur sviðum til ársins 1999 þegar ræstingaþjónustan var seld. Nú eru starfsmenn Securitas um 400og þjóna þeir þúsundum viðskiptavina, þar af flestum af stærstu fyrirtækjum landsins.

Á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri er farandgæsla og aka bílar Securitas um svæðið allan sólarhringinn. Þá sér fyrirtækið um staðbundna gæslu fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana. Öryggisgæsla Securitas nær til allra þátta öryggismála. Félagið býður varnir og eftirlit við bruna, vatnstjón, innbrot, kemur fyrir vöruverndarhliðum og myndavélum í fyrirtækjum og stofnunum. Securitas er leiðandi fyrirtæki sem vinnur forvarnarstarf með það að markmiði að auka öryggi viðskiptavina sinna og koma í veg fyrir að þeir verði fyrir tjóni.
 
Öflug tækniþekking og þjónustulund

Securitas hóf starfsemi þjónustuvers í byrjun árs 2002. Með öfluga tækniþekkingu og þjónustulund að leiðarljósi sinnir starfsfólk þjónustuversins þörfum viðskiptavina og er tengiliður þeirra innan fyrirtækisins. Símanúmer þjónustuversins er 580 7100 og það er opið frá kl. 8:00 til kl. 17:00 alla virka daga en auk þess er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið thjonusta@securitas.is



Skrifstofa Securitas er opin frá kl. 9:00 til kl. 17:00 alla virka daga, en eftir þann tíma sér Securitas Akureyri um símavörslu.
 

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070