Securitas sinnir margvíslegum sérverkefnum ásamt hefðbundinni öryggisgæslu, dæmi um slík verkefni eru:
HLIÐVARSLA
Securitas hefur um nokkurra ára skeið stundað hliðvörslu fyrir stór fyrirtæki og stofnanir með afgirt athafnasvæði og takmarkaðan aðgang. Tilgangurinn er meðal annars að hafa stjórn á allri umferð inn og út af athafnasvæði viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Með faglegri hliðvörslu er hægt að koma í veg fyrir truflun óviðkomandi, minnka slysahættu þeirra sem fara inn á svæðið og sporna við almennri vörurýrnun
RÝRNUNAREFTIRLIT
Securitas hefur um árabil stundað rýrnunareftirlit í verslunum vegna þjófnaðar, bæði með einkennisklæddum og óeinkennisklæddum öryggisvörðum. Mælingar hafa sýnt að árangur rýrnunareftirlits er margfaldur á við þann kostnað sem því fylgir.
HÚSVARSLA
Securitas býður hagkvæmar lausnir í húsvörslu, þar sem þjónustuaðili fyrirtækisins kemur inn í stuttan tíma á viðkomandi stað (fyrirtæki eða fjölbýlishús), og leysir af hendi þau verkefni sem húsverðir sinntu áður. Vegna tímabundinnar viðveru þjónustuaðila, tekur stjórnstöð Securitas við ábendingum frá viðkomandi íbúum eða fyrirtækjum um atriði sem þurfa lagfæringar eða athugunar við og kemur þeim á framfæri við þann þjónustuaðila Securitas sem annast viðkomandi húsvörsluverkefni. Með þessu fyrirkomulagi er ekki þörf fyrir stöðuga viðveru á staðnum og því hægt að ná fram verulegri hagræðingu.