VERÐMÆTAFLUTNINGAR
- veldu öryggi í stað áhættu
Securitas hefur um árabil verið leiðandi fyrirtæki í verðmætaflutningum á Íslandi. Þeim fyrirtækjum fjölgar stöðugt sem vilja nýta sér það öryggi sem fylgir peningaflutningum Securitas úr verslun í banka og komast þannig hjá því að setja starfsmenn sína í þá hættu sem fylgir því að flytja peninga milli staða.

SÉRÞJÁLFAÐIR ÖRYGGISVERÐIR
Öryggisverðir Securitas sem sinna verðmætaflutningum hafa allir unnið um árabil hjá fyrirtækinu, þeir eru sérvaldir og fá sérstaka þjálfun. Jafnan eru ekki færri en tveir öryggisverðir við flutninga á verðmætum.
ÚTBÚNAÐUR
Öryggisverðir í verðmætaflutningum eru útbúnir besta öryggisbúnaði sem völ er á og í flutningana eru notaðar bifreiðar sem sérstaklega eru útbúnar til verðmætaflutninga.
TÍMASETNINGAR
Ákveðið fyrirkomulag er á verðmætaflutningum sem skipulagt er í samvinnu við hvert fyrirtæki. Af öryggisástæðum er óregla höfð á þeim tímasetningum þegar verðmæti eru sótt á hvern stað.
NEYÐARLÍNAN 112
Öryggisverðir í verðmætaflutningum eru undir stöðugri fjarvöktun stjórnstöðvar Securitas á Neyðarlínunni 112 meðan á flutningum stendur.
TEGUNDIR VERÐMÆTAFLUTNINGA:
DAGLEGIR FLUTNINGAR
Hentar fyritækjum með mikla daglega veltu. Sérþjálfaðir öryggisverðir losa starfsmenn undan þeirri fyrirhöfn og áhættu sem fylgir því að fara með uppgjör í banka.
AFRITUN OG VARSLA GAGNA
Færst hefur í vöxt að fyrirtæki kaupi þá þjónustu að afritunarspólur úr tölvukerfi þess séu reglulega sendar til varðveislu utan fyrirtækisins. Ráðstafanir sem þessar koma í veg fyrir að upplýsingar úr tölvukerfi fyrirtækisins glatist við hugsanlegan bruna, innbrot eða skemmdarverk, vatnsleka eða aðra vá.
SÉRVERKEFNI
Securitas tekur að sér fjölmörg sértæk verkefni í verðmætaflutningum í tengslum við sérstaka álagstíma s.s. fyrir jól, útsölur eða uppákomur eins og sýningar eða tónleikahald.
ÁFYLLING Á HRAÐBANKA
Securitas hefur um árabil séð um áfyllingar á hraðbanka fyrir banka og fjármálastofnanir utan útibúa þeirra.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.