FARANDGÆSLA SECURITAS
- veldu öryggi í stað áhættu
Farandgæsla Securitas snýst um fyrirbyggjandi eftirlit og vöktun svæða þar sem erfitt getur reynst að koma fyrir öryggisbúnaði. Öryggisvörður fer í umsaminn fjölda eftirlitsferða í viðkomandi fyrirtæki samkvæmt þeim samningi sem gerður er um þjónustuna.
Farandgæsla getur jafnframt verið heppileg viðbót við öryggiskerfi sem fyrir eru og þar sem sinna þarf mjög sértækum verkefnum. Hún getur einnig hentað vel þar sem vakta þarf tímabundið t.d. á byggingasvæðum, bílastæðum og íþróttavöllum svo eitthvað sé nefnt.

DÆMI UM VERKEFNI FARANDGÆSLU SECURITAS:
ALMENNT EFTIRLIT
Fyrirbyggjandi eftirlit með fyrirtækjum og stöðum þar sem erfitt getur reynst að koma fyrir öðrum öryggisbúnaði t.d. á útisvæðum.
EFTIRLIT MEÐ TÆKJABÚNAÐI
Öryggisverðir í Farandgæslu Securitas hafa séð um eftirlit með ýmiskonar tækjabúnaði og vélum hitastigi í kælum og frystum verslana, tölvurýmum fyrirtækja o.fl.
FRÁGANGUR Í LOK DAGS
Farandgæsla Securitas tekur að sér að yfirfara frágang sem þarf að eiga sér stað í fyrirtækjum í lok vinnudags, svo sem að loka gluggum, ganga frá búnaði o.s.frv.
EFTIRLIT MEÐ ÞJÓNUSTUAÐILUM
Öryggisverðir sjá víða um að opna fyrirtæki fyrir þjónustuaðilum utan opnunartíma, ásamt því að hafa, eftir atvikum, eftirlit með umgengni þeirra fyrir viðskiptavini.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.