STAÐBUNDIN ÖRYGGISGÆSLA
Staðbundin öryggisgæsla byggist á því að öryggisvörður stundar vörslu við sama gæsluverkefni allan samningstímann, með stöðugri viðveru. Eðli þessarar þjónustu tryggir nauðsynlegt fyrirbyggjandi eftirlit og viðeigandi markviss viðbrögð ef eitthvað ber út af. Þetta fyrirkomulag felur í sér formfestu í aðgangsstjórnun, en jafnframt þann sveigjanleika sem óskað er eftir á hverjum stað.

Sem dæmi um farsælt samstarf á sviði staðbundinnar öryggisgæslu má nefna Kringluna. Þar hafa Öryggisverðir Securitas staðið vaktina síðan 1988 með góðum árangri.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.