Aðgangsstýrikerfi

AÐGANGSSTÝRIKERFI
- veldu öryggi í stað áhættu

Með aðgangsstýrikerfi Securitas er hægt að stjórna nákvæmlega hvaða aðgang hver og einn starfsmaður hefur um húsnæði fyrirtækisins. Aðgangskort koma þannig í stað lykla að öllum hurðum fyrirtækisins, bæði inni- og útihurðum. Allur umgangur um fyrirtækið skráist í dagbólk aðgangsstýrikerfisins og er rekjanlegur ef þess gerist þörf. Aðgangsstýrikerfi gefur fullkomna yfirsýn á því hverjir ganga um fyrirtækið, hvar og hvenær.

LYKLALAUST HÚSNÆÐI
Með aðgangsstýrikerfi skapast lyklalaust umhverfi, ef kort týnist eða starfsmaður hættir er auðvelt að gera það óvirkt.

SJÁLFVIRK DAGBÓK UM UMGENGNI
Í dagbókinni kemur fram hver gengur um hvaða hurðir og á hvaða tíma. Einnig hvort notendur kerfisins reyna að ganga um hurðir sem þeir hafa ekki aðgang að.

AUÐVELD AÐGANGSSTÝRING
Hver notandi fær aðeins aðgang að þeim hurðum sem hann þarf að hafa aðgang að, en mjög auðvelt er að breyta aðgangsheimildum notenda.

AÐGANGSKORT OG AUÐKENNIKORT
Á aðgangskortin er hægt að prenta nafn og merki fyrirtækisins, setja mynd af starfsmanni, nafn hans og ábyrgðasvið, þannig að þau nýtist einnig sem auðkennikort.

TÍMASTÝRÐAR HURÐIR
Hægt er að láta hurðir læsast eða aflæsast sjálfvirkt á mismunandi tímum sólarhringsins og þannig stjórna því hvort möguleiki sé á að ganga um hurðir á ákveðnum tíma dagsins eða ekki.

MISMUNANDI STÆRÐIR
2-4 Aðgangsstýrikerfi fyrir tvær til fjórar hurðir. Hentugt fyrir smærri fyrirtæki eða fyrirtæki sem þarfnast aðgangsstýringar á takmörkuðu rými.

4-8 Aðgangstýrikerfi fyrir meðalstór fyrirtæki fyrirtæki sem þurfa stýringu á umgengni um húsnæði sitt. Settir eru upp kortalesarar og raflæsingar á hverja hurð sem stýra á, ásamt stjórnbúnaði.

8-16 Stórt aðgangsstýrikerfi fyrir fyrirtæki í húsnæði með 8 til 16 hurðir sem á að aðgangsstýra. Settir eru upp kortalesarar og raflæsingar á hverja hurð sem stýra á, ásamt stjórnbúnaði. Hentar vel stærri fyrirtækjum og stofnunum sem vilja hafa góða stýringu á umgengni og aðgangi.

16+ Aðgangsstýrikerfi fyrir 16 eða fleiri hurðir, hentar vel stórum fyrirtækjum með marga starfsmenn og mörg rými sem þarfnast aðgangsstýringar. Settir eru upp kortalesarar og raflæsingar á hverja hurð sem stýra á, ásamt stjórnbúnaði.


Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070