SLÖKKVITÆKI SECURITAS
- veldu öryggi í stað áhættu
Slökkvitæki eru nauðsynleg inn á hvert heimili. Ef eldur kemur upp er mjög gott að geta brugðist snögglega við og gripið til nærliggjandi slökkvitækis. Með því er hægt að koma í veg fyrir tjón. Því er afar mikilvægt að slökkvitækin séu á réttum stöðum á heimilinu og fjölskyldumeðlimir viti hvar þau eru. Ekki er þó nóg að eiga slökkvitækið, það þarf að yfirfara það árlega og býður Securitas upp á þá þjónustu. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar um eldvarnir heimilins á netverslun Securitas og Sjóvá.
SECURITAS MÆLIR MEÐ:
Slökkvitækjaþjónusta Securitas annast allt viðhald slökkvitæka fyrir einstaklinga og fyrirtæki, ásamt kennslu á notkun tækjanna. Slökkvitæki sem ekki er skoðað og yfirfarið reglulega getur reynst ónothæft þegar á hólminn er komið. Duftið í tækjunum harðnar með tímanum og þrýstingur minnkað, auk þess sem tæki geta orðið fyrir hnjaski í flutningum. Ef þú veist ekki hvenær þitt slökkvitæki var yfirfarið síðast, komdu þá með það til okkar í Síðumúla 23 eða hafðu samband og við ráðleggjum þér varðandi næstu skref.
Hafðu samband í síma 580 7000 og ráðfærðu þig við öryggisráðgjafa Securitas.