Fréttir Nánar

SECURITAS FYRIRMYNDAFYRIRTÆKI 2010

Samkvæmt árlegri könnun VR meðal starfsfólks 2000 fyrirtækja á Íslandi var Securitas í einu af efstu sætum könnunarinnar í hópi stærri fyrirtækja, 6. sæti.  Að launum hlýtur fyrirtækið viðurkenningu VR og nafnbótina Fyrirmyndafyrirtæki 2010.  Íslenska gámafélagið og Spölur voru valin Fyrirtæki ársins í könnun VR en niðurstöðurnar voru kynntar í dag. Íslenska gámafélagið vann í hópi stærri fyrirtækja en Spölur í hópi minni fyrirtækja þar sem starfa 49 eða færri starfsmenn.

VR hefur staðið fyrir könnun á Fyrirtæki ársins í rúman áratug og síðustu fimm ár hefur SFR, stéttarfélag starfsmanna hins opinbera, tekið þátt. Þetta er stærsta vinnumarkaðskönnun á Íslandi og í ár fengu ríflega 30 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði spurningaeyðublað. Könnunin nær einnig út fyrir raðir VR og SFR því yfir eitt hundrað fyrirtæki og stofnanir tóku þá ákvörðun að veita öllum starfsmönnum færi á því að taka þátt, burtséð frá því í hvaða stéttarfélag þeir voru.  Markmið könnunarinnar er að skapa umræðuvettvang starfsmanna og stjórnenda um vinnustaðinn. Hún veitir starfsmönnum tækifæri til að koma skoðunum sínum og athugasemdum á framfæri og skapar þeim grundvöll til að ræða um starfsaðstæður sínar og kjör við sína yfirmenn. Niðurstöðurnar nýtast starfsmönnum einnig til að meta sinn vinnustað í samanburði við aðra vinnustaði, bæði í sömu atvinnugrein og í öðrum ólíkum greinum.

 

« Til baka

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070