Faxaflóahafnir og Securitas hafa gert með sér saming um staðbundna hafnargæslu við Grundartangahöfn. Hafnargæslan er hluti af verndarráðstöfunum til að uppfylla kröfur um hafnarvernd í samræmi við lög um siglingavernd. Starfsmenn Securitas munu hafa eftirlit með hafnarsvæðinu, stýra aðgangi og umferð um haftasvæði og sinna almennri öryggisgæslu á svæðinu.
Hafnargæsla Securitas við Grundartangahöfn hefst 1. apríl nk.
Trausti Harðarson forstjóri Securitas og Jón Þorvaldsson Faxaflóahöfnum handsala samninginn
|