Fréttir

Hverfagæsla Securitas í Reykjanesbæ

Securitas og Reykjanesbær hafa gert með sér samning um Hverfagæslu til reynslu frá 19. des. til loka janúar.

Þjónustan felur í sér að mannaður, sérmerktur bill ekur um hverfi bæjarins og hefur vakandi auga með óæskilegri umferð, eftirlit með eignum íbúa og sveitarfélagsins. Þá verður fylgst m eð hópamyndun barna og unglinga, frágangi á byggingasvæðum og öðru sem athygli vekur.

Markmið verkefnisins er að draga úr hættunni á skemmdarverkum og innbortum í íbúðir og fyrirtæki. Þá standa vonir til að verkefnið fækki eða komi í veg fyrir skemmdir á eignum almennings og Reykjanesbæjar, s.s. strætóskýlum og merkingum, skólahúsnæði og fleiri eignum.

Í lok tímabilsins mun Securitas Reykjanesi láta framkvæma skoðanakönnun á meðal íbúa bæjarins. Í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um framhald verkefnisins.

Kjartan Már Kjartansson, framkvæmdastjóri Securitas á Reykjanesi og Árni Sigfússon, bæjarstjóri undirrituðu samning þessa efnis en viðstaddur var einnig Gunnar Schram frá lögreglunni á Suðurnesjum. Gunnar sagði þetta jákvæða tilraun og yrði góð viðbót við þá vinnu sem lögreglan sinnir. Ekki væri um að ræða neina skerðingu á henni þrátt fyrir þessa tilraun.


Frá undirritun: Gunnar Schram, Árni Sigfússon og Kjartan Már Kjartansson

 

« Til baka

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070