Securitas

5807000

Smelltu hér

Aðgangsstýrð bómuhlið

Securitas býður aðgangsstýrð bómuhlið fyrir sumarhúsasvæði. Bómuhliðin eru þýsk hágæðavara með 10 ára ábyrgð gagnvart tæringu. Hægt er að fá hliðin í mismunandi lengdum og henta því fyrir allar aðstæður. Hliðin koma með hitara sem tryggir virkni við íslenskar aðstæður. Einnig eru hliðin útbúin segulfestingu sem tryggir að ekki er hægt að opna hliðin handvirkt.

Bómuhlið frá Securitas koma bæði með fjarstýringum og GSM opnara. GSM opnarinn virkar þannig að þegar fyrir fram forrituð númer hringja í hliðið þá opnast það. GSM opnarinn notar númerabirti til að vita hvaða númer er að hringja en svarar ekki og því er enginn kostnaður við að hringja í hliðið.

Hliðin koma með öryggisbúnaði sem tryggir að hliðið lokast ekki á bíla né manneskjur.

Bómuhlið frá Securitas hindra óæskilega umferð um sumarhúsasvæðið. Hliðin draga einnig úr umferð sem gerir svæðið öruggara fyrir gangandi umferð og börn að leik.

Securitas er með öfluga tæknideild sem er með vakt allan sólarhringinn allt árið um kring og getur þannig veitt hágæða- og snögga þjónustu.

  • Fjarmyndavöktun
  • Vaktar innkomu í sumarhúsasvæði
  • Hindrar óæskilega umferð
  • Gögn vistuð hjá Securitas
bomuhlid sm