Securitas

5807000

Slökkvitæki

slokkvitaekiSlökkvitæki eru nauðsynleg inn á hvert heimili. Ef eldur kemur upp er nauðsynlegt að geta brugðist snögglega við og gripið til nærliggjandi slökkvitækis. Með því er hægt að koma í veg fyrir tjón.

Það er afar mikilvægt að slökkvitækin séu á réttum stöðum á heimilinu og fjölskyldumeðlimir viti hvar þau eru. Ekki er þó nóg að eiga slökkvitækið, það þarf að yfirfara það árlega og býður Securitas þjónustu. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar um eldvarnir heimilins hjá öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínum.


SECURITAS MÆLIR MEÐ:

BÍLLINN
Handhægt 2 kg. duftslökkvitæki sem hentar vel í bílinn. Slekkur alla elda. Bílafesting fylgir.

BÍLSKÚRINN
6 kg. duftslökkvitæki sem hentar vel í bílskúrinn. Slekkur alla elda og ræður sérstaklega vel við gas- og olíuelda.

HEIMILIÐ
Vandað 6 kg. léttvatnsslökkvitæki sem gott er að hafa miðsvæðis á heimilinu. Slökkvitækið inniheldur hreinlegt slökkviefni og slekkur alla elda nema gaselda.

SUMARHÚSIÐ
6 kg. duftslökkvitæki sem nauðsynlegt er í sumarhúsið. Slökkvitækið ræður vel við alla elda.

GASGRILLIÐ
Handhægt 2 kg. duftslökkvitæki sem gott er að hafa við hlið gasgrillsins. Slekkur alla elda.

GASELDAVÉLIN
6 kg. duftslökkvitæki sem ræður sérstaklega vel við gaselda. Fyrir þá sem eru með gaseldavél á heimilinu er einnig nauðsynlegt að hafa gasskynjara.

ELDVARNARTEPPI
Nauðsynlegt er hafa eldvarnarteppi í eldhúsinu. Teppið skal hafa nálægt eldavélinni þar sem það hentar sérstaklega vel til þess að kæfa eld í pottum. Securitas mælir með eldvarnarteppi fyrir heimilið í stærðinni 100 x 100 cm.

SJÚKRAKASSI
Mikilvægt er að sjúkrakassi sé á hverju heimili. Hann verður að innihalda það nauðsynlegasta sem grípa þarf til ef slys ber að höndum.

 

 

Skynjarar

...