Slökkvitækjaþjónusta
Slökkvitækjaþjónusta Securitas annast allt viðhald slökkvitæka fyrir einstaklinga og fyrirtæki, ásamt kennslu í notkun tækjanna. Slökkvitæki sem ekki er skoðað og yfirfarið reglulega getur reynst ónothæft þegar á hólminn er komið. Duftið í tækjunum harðnar með tímanum og þrýstingur minnkar, auk þess sem tæki geta orðið fyrir hnjaski í flutningum. Ef þú veist ekki hvenær þitt slökkvitæki var yfirfarið síðast, komdu þá með það til okkar í Skeifuna 8 eða hafðu samband og við ráðleggjum þér varðandi næstu skref.
Þjónustuverið okkar er opið alla virka daga frá klukkan 8-17. Símanúmerið er 580-7100.
Öryggispakki 1.
Góður öryggispakki fyrir heimilið eða sumarhúsið. Einn með öllu. Inniheldur þrjá optíska reykskyknjara og eldvarnarteppi fyrir eldhúsið.
Öryggispakki 2.
Góður öryggispakki fyrir heimilið eða sumarhúsið. Einn með öllu. Inniheldur 6 kg. ABC dufttæki, heimilisreykskynjara og eldvarnarteppi fyrir eldhúsið.
Öryggispakki 3.
Flottur pakki fyrir heimilið eða sumarhúsið. Hann inniheldur 6 kg. ABC dufttæki án mælis og optískan reykskynjara fyrir heimilið.
6 l. léttvatnsslökkvitæki með mæli og festingu
Mjög gott og vandað léttvatnsslökkvitæki. Hentar vel á heimilum og í fyrirtækjum. Veggfesting fylgir. Öflugur dreifistútur sem gefur hámarksárangur.
9 l. léttvatnstæki með mæli og festingu
Mjög gott og vandað léttvatnsslökkvitæki. Hentar vel heimilum eða fyritækjum. Veggfesting fylgir. Öflugur dreifistútur sem gefur hámarksárangur. Tækið er einnig viðurkennt af Siglingamálastofnun Íslands sem aðaltæki um borð í skipum og bátum.
Eldvarnarteppi
Nauðsynlegt í eldhúsið heima og í sumarbústaðinn. Hafið ávallt eldvarnarteppi í eldhúsum þar sem teppið hentar sérstaklega vel í að slökkva elda á eldavél.

Heimilisreykskynjari, 9V Optískur
Optískur reykskynjari fyrir heimilið. Þessi skynjari hentar fyrir algengastu elda í heimahúsum. Sérstaklega góður til þess að greina kaldan reyk frá t.d. raftækjum eða rafmagnstöflu. Nauðsynlegt öryggistæki á öll heimili.
Gasskynjari
Wizmart gasskynjari, tilvalinn í sumarhúsið. Skynjar metan-, própan- og bútangas. Hentar vel í sumarbústaðinn og heimilið. Nauðsynlegt fyrir þá sem eru með gaseldavélar.
Gasskynjari Flammex 230V
F-911 með snúru. Skynjar metan-, própan- og bútangas. Hentar vel í sumarbústaðinn og heimilið. Nauðsynlegt fyrir þá sem eru með gaseldavélar. Íslenskar leiðbeiningar fylgja.





