Securitas

5807000

Myndeftirlit

Myndeftirlitskerfi Securitas veitir góða yfirsýn og gerir stjórnendum kleift að hafa eftirlit með húsakynnum, starfsemi og svæðum í kringum fyrirtæki sín. Betri yfirsýn, skoðun og eftirleit einstakra atburða og eignavarsla ásamt auknu öryggi starfsfólks og viðskiptavina eru helstu ástæður þess að velja öryggismyndavélar sem hluta af öryggiskerfi fyrirtækisins.


MYNDEFTIRLITSKERFI
Myndeftirlitskerfið samanstendur af mismunandi fjölda myndavéla sem settar eru upp víðs vegar um eftirlitssvæðið og upptökubúnaði. Kerfið tekur upp stafrænar upptökur, þegar hreyfing er fyrir framan myndavélarnar, sem vistaðar eru á upptökubúnaðinum.
MyndeftirlitskerfiEINFALT Í NOTKUN
Einfalt er að skoða upptökur myndeftirlitskerfisins og leita að atburði. Hægt er að setja upp marga notendur með mismunandi aðgangsheimildum til að takmarka aðgengi að myndeftirlitskerfinu og skoðun á einstökum upptökum.


FJARTENGING OG FJARSKOÐUN
Hægt er að tengjast myndeftirlitskerfinu í gegnum hefðbundna nettengingu. Með fjartengingunni er hægt að skoða myndir í rauntíma, skoða upptökur og framkvæma allar helstu aðgerðir.


MYNDAVÉLAR
Securitas býður fjölbreytt úrval eftirlitsmyndavéla, bæði Analog og háupplausna IP myndavélar. Hægt er að fá fastar eða hreyfanlegar myndavélar fyrir allar aðstæður. Myndavélar frá Securitas uppfylla ströngustu kröfur markaðsins. Framþróun í IP eftirlitsmyndavélum hefur orðið til þess að upplausn myndavéla hefur farið úr VGA upplausn upp í Mega pixel upplausn á skömmum tíma. Með þessari þróun hefur notkunargildi eftirlitsmyndavéla aukist og gæði myndefnis hefur aukist til muna.

Myndavelaframleidendur

Hagnýtar upplýsingar um IP myndavélakerfi: Smellið hér!

 

Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við erum tilbúin að aðstoða þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.