Það er gott að geta dvalið heima hjá sér sem lengst ef aðstæður breytast vegna veikinda, slyss eða sökum aldurs. Enda kjósa það flestir ef kostur er. Þá er afar mikilvægt að finna til öryggis ef eitthvað kemur upp á og dregur ekki síður úr áhyggjum hjá aðstandendum að vita af sínum nánustu í öruggum höndum öllum stundum. Þar kemur öryggishnappur Securitas til sögunnar.
FULLKOMIÐ ÖRYGGI Í ÁSKRIFT
Greitt er vægt mánaðargjald fyrir öryggishnappinn, búnaðinn og þá þjónustu sem honum fylgir. Ef læknir metur þörf fyrir öryggishnappinn er hægt að sækja um styrk hjá Sjúkratryggingum Íslands til kaupa á þjónustunni og viðskiptavinur greiðir síðan einungis lágt mánaðargjald.
ÞÚ ÝTIR Á HNAPPINN OG FÆRÐ BEINT SAMBAND
Öryggishnappur Securitas er einfalt og fyrirferðalítið öryggistæki sem borið er um úlnliðinn eða hálsinn þannig að auðvelt er að ýta á hnappinn ef óhapp, veikindi eða slys ber að. Þá berast samstundis boð til stjórnstöðvar Securitas og beint talsamband opnast við sérþjálfað og þjónustulundað starfsfólk.
SVONA VIRKAR ÖRYGGISHNAPPURINN:

Ýttu á hnappinn sem þú getur bæði haft um háls eða á hendi. Boð berast til stjórnstöðvar Securitas og um leið birtast nauðsynlegar upplýsingar um þig og þínar aðstæður.

Talsamband kemst á milli þín og stjórnstöðvar. Öryggisvörður með lykil að húsnæði þínu kemur á staðinn ef þörf er á.

Sjúkrabíll og/eða læknir er sendur á vettvang ef þörf krefur og haft er samband við aðstandendur.
Hægt er að bera hnappinn um hálsinn eða á úlnlið.


UMSÓKNARFERLI TIL SJÚKRATRYGGINGA ÍSLANDS
A Heimilislæknir viðkomandi eða sérfræðingur fyllir út umsóknareyðublað um öryggishnapp.
B Læknirinn sér um að senda umsóknina til hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands. Svar berst til umsækjanda með lýsingu á niðurstöðu umsóknarinnar.
C Umsækjandi óskar eftir því við Sjúkratryggingar að fá öryggishnapp frá Securitas. Sjúkratryggingar senda beiðni til Securitas um uppsetningu á hnappi.
D Tæknimaður Securitas setur hnappinn upp, sér um fullnaðarfrágang tækis, kennslu, útskýringu útkallsferils sem og skráningu allra nauðsynlegra upplýsinga um hnappþegann og fær afhenta lykla.
E Að lokinni uppsetningu er hnappþegi með 24 tíma öryggisþjónustu frá Securitas.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og kynntu þér öryggishnappinn. Þannig getur þú tryggt þér og þínum betra öryggi öllum stundum.