HEIMILIÐ Í ÖRUGGUM HÖNDUM 
Veldu öryggi í stað áhættu
Securitas hefur ætíð verið í fararbroddi þegar kemur að öryggisvörnum heimilisins.
Heimavörn Securitas vaktar heimilið allan sólarhringinn, allan ársins hring.Heimavörnin er beintengd stjórnstöð Securitas þar sem við erum ávallt í viðbragðsstöðu. Þannig getur þú verið viss um að réttir aðilar koma samstundis á staðinn ef eitthvað kemur upp á hjá þér og fjölskyldu þinni.
Heimavörn Securitas gerir viðvart:
- Ef óæskilegur umgangur er um heimilið
- Ef reyk leggur um vistarverur
- Ef kemur upp vatns- eða gasleki
- Ef rafstraumur fer af húsinu
Hafðu samband í síma 580 7000 eða smelltu á hnappinn "Fá hringingu" hér til vinstri
og haft verður samband við þig fljótlega.
Þú og fjölskylda þín njótið lífsins betur með Securitas
Að verja heimilið fyrir vá snýst ekki aðeins um að draga eins og kostur er út efnislegu tjóni. Það snýst um það sem mestu máli skiptir, að þú og fjölskylda þín finnið til aukins öryggis á eigin heimili.
VAKT
Stöðug vakt er í stjórnstöð Securitas og starfsfólk bregst við samstundis ef eitthvað bjátar á. Ef boð berast frá skynjara er hringt jafnharðan í síma á heimilinu. Ef símhringingu er ekki svarað aka starfsmenn Securitas óðara á staðinn og grípa til nauðsynlegra ráðstafana. Þeir eru með lykil að húsinu sem stjórnstöð fékk til varðveislu um leið og Heimavörn var sett upp á heimilinu.
INNBROTAVÖRN
Hreyfiskynjarar og skynjarar á hurðum og gluggum nema strax ef óæskilegur umgangur er um heimilið og sírena gerir viðvart. Reynslan hefur sýnt að innbrotsþjófar forða sér hið snarasta af vettvangi.
- Ef óæskilegur umgangur er um heimilið
Heimilið er í öruggum höndum Securitas og þú getur verið áhyggjulaus hvort sem þú ert heima eða að heiman.
BRUNAVÖRN
Reykskynjarar eru stöðugt tengdir stjórnstöð Securitas þar sem alltaf er einhver á vakt. Þannig er hægt að bregðast við brunaviðvörun, hvort sem einhver er heima eða ekki. Eldsvoðar eru lífshættulegir og valda iðulega miklu tjóni á verðmætum. Með Brunavörn Securitas margfaldar þú einfaldlega öryggi þitt og þinna.
- 1 reykskynjari er staðalbúnaður í Heimavörn.
VATNSLEKAVÖRN
Vatnsleki getur valdið gríðarlegu fjárhagslegu og tilfinningalegu tjóni. Það skiptir því sköpum að fá nærri samstundis boð um það ef vatnslagnir heimilisins leka.
- 1 vatnskynjari er staðalbúnaður í Heimavörn.
GASLEKAVÖRN
Það verður æ algengara að gas sé notað til eldunar á íslenskum heimilum. En þótt ströngustu reglum um búnað og staðsetningu gaskúta sé fylgt þá er aldrei hægt að treysta á að gas leki ekki út. Í lokuðu rými getur þannig skapast gríðarleg hætta á sprengingu og eldsvoða.
- Gasskynjari er aukabúnaður í Heimavörn.
SPENNUVAKT
Stundum hendir að raftæki á heimilinu slær út og allur rafstraumur fer af húsinu. Ef enginn er heima, t.d. í nokkra daga, getur slíkt straumrof valdið verulegu tjóni á raftækjum. Þar sem heimili er tengt við öryggiskerfi verður þess samstundis vart í stjórnstöð Securitas ef rafmagn fer af vöktuðu heimili.
LYKLAAFHENDING
Þegar Heimavörn er sett upp fær stjórnstöð Securitas lykil að húsinu til varðveislu. Í neyðartilvikum, t.d. ef enginn er heima eða húsráðandi hefur týnt lykli, geta starfsmenn Securitas komið á staðinn og opnað.
ENGINN STOFNKOSTNAÐUR AF STAÐALBÚNAÐI
Þú greiðir engan stofnkostnað af staðalbúnaði þegar þú færð þér Heimavörn Securitas. Við komum með kerfið á staðinn og setjum það upp, hratt og örugglega. Þú greiðir mánaðarlegt þjónustugjald sem felur í sér fjarvöktun kerfisins, viðhald þess og útköll öryggisvarða, hvenær sólarhringsins sem er, alla daga ársins.
Staðalbúnaður í Heimavörn:
|
|
|
Hægt er að bæta við eftirfarandi aukabúnaði til viðbótar við Heimavörnina:
|
|
Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000
og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu heimili.
