Securitas

5807000

Mönnuð gæsla

farandgaeslaStærri fyrirtæki og stofnanir hafa nú á seinni árum í æ ríkari mæli lagt í þá vinnu sem fylgir því að skilgreina áherslur sínar og stefnu í öryggismálum á heildstæðan hátt. Niðurstaða þeirrar vinnu er jafnan skilgreind ítarlega í sérstakri öryggisstefnu viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar.

Öryggisstefna er oftar en ekki byggð á vel skilgreindum og samhæfðum öryggislausnum þar sem tæknilausnum og mannaðri öryggisgæslu er tvinnað saman á skilvirkan hátt. Markmiðið er að skapa heildstæða lausn gagnvart þeim hættum og þeirri vá sem helst er talin ógna öryggi á staðnum eða daglegum rekstri.

Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur verið lögð rík áhersla á að vinna eftir vel skilgreindu og vönduðu verklagi varðandi umsóknarferli, mannaráðningar og þjálfun. Grunnatriði þessu tengt er að tryggja sem gleggstar bakgrunnsupplýsingar umsækjenda, í ljósi þess að öryggisverðir fyrirtækisins fá afhenta lykla að fjölda fyrirtækja og heimila til að geta sinnt starfi sínu og er með því sýnt ómælt traust. Fyrirtækið leggur því mikla áherslu á að standa undir þessu trausti með því að vanda til verka við mannaráðningar og þjálfun.

Við uppbyggingu á Öryggisvarðaskóla Securitas og fræðsluáætlun fyrirtækisins er tekið sérstaklega mið af því hlutverki sem öryggisverðir gegna í samfélagslegu tilliti, sem er meðal annars að stuðla að öruggara samfélagi á Íslandi. Lögð er áhersla á að kalla fram metnaðarfullt viðhorf öryggisvarða til að skila góðu starfi þar sem öryggishagsmunir viðskiptavina fyrirtækisins eru gerðir að okkar hagsmunum. Til þess að svara væntingum viðskiptavina um faglega framkvæmd er því lagt upp úr því að byggja á vel skilgreindri grunnþjálfun, framhaldsþjálfun og æfingum, sem eykur hæfni öryggisvarða til að stunda markvisst fyrirbyggjandi eftirlit og að takast á við neyðaruppákomur af ýmsu tagi.

Þörf fyrir þessa þjónustu hefur aldrei verið eins mikil og hún er í dag. Sífellt fleiri sjá kosti þess að hafa þjálfaða öryggisverði til staðar í fyrirtækjum sínum, til þess að auka öryggi starfsmanna og viðskiptavina.
Securitas stundar daglega verðmætaflutninga, þar sem tekin er full ábyrgð á þeim verðmætum sem flutt eru á hverjum tíma. Víða er tekin óþarfa áhætta í tengslum við flutning á verðmætum. Securitas hefur jafnframt, í samvinnu við erlend öryggisfyrirtæki, tekið að sér öryggisflutninga til og frá landinu.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa og fáðu nánari upplýsingar í síma 580 7000.

Sérhæfð Öryggisgæsla

LÍFVARSLA

Securitas býður öryggislausnir af öllu tagi sem er ætlað að mæta mismunandi þörfum og öryggiskröfum viðskiptavina. Sumir þurfa sérhæfðaog persónulegri vernd en aðrir. Mikilvægir gestir fyrirtækja geta t.d. þurft sérstaka vernd í veislum, á kaupstefnum, ráðstefnum eða öðrum viðburðum. Securitas byggir skipulagningu og framkvæmd hvers verkefnis á þeim áherslum sem viðskiptavinir fyrirtækisins leggja upp með hverju sinn. Því tengt er lögð áhersla á að gestir viðskiptavina séu í tryggum höndum sérþjálfaðra öryggisvarða fyrirtækisins þar sem öryggi, vellíðan og ánægja þeirra er forgangsmál.

 

VIP-ÞJÓNUSTA SECURITAS

Hjá Securitas starfa öryggisverðir sem hlotið hafa vandaða, faglega þjálfun í sérhæfðri öryggisgæslu. Á námskeiðunum og þeim æfingum sem tengjast þjálfuninni er byggt á íslenskum aðstæðum, bæði varðandi umhverfi, menningu og lagaumhverfi.   Skipulagning og framkvæmd þjálfunar er jafnframt unnin samvinnu við fjölmarga viðurkennda opinbera aðila á sviði öryggis- og löggæslu, bæði innlenda og erlenda.

Sérhæfðir öryggisverðir fyrirtækisins taka að sér akstur á gestum fyrirtækja og stofnana á milli staða og sameina þannig öryggi og þægindi við brottför eða komu til landsins. Í verkefnum af þessu tagi er hafður meðferðis nauðsynlegur búnaður s.s. regnhlíf, vatn og léttur hlífðarfatnaður. Starfsmenn eru bundnir trúnaði um öll mál viðskiptavina Securitas og undirrita samning þar að lútandi.

 

SAMHÆFING AÐGERÐA

Þegar gera þarf auknar öryggisráðstafanir vegna sérstakra viðburða eða aðstæðna þá býður Securitas alhliða vernd, frá hinu smæsta til hins stærsta. Securitas tekur að sér að stýra aðgangi að svæðum og hafa með þeim eftirlit, sjá um akstur milli staða og að skipuleggja flóttaleiðir og fylgja þeim gestum sem þurfa aukna vernd.

 

STJÓRN Á AÐSTÆÐUM

Hvert verkefni er undirbúið og skipulagt með hliðsjón af þeim tímaramma og þeim kröfum viðskiptavina sem fram koma í hverju tilviki. Mikilvægt er að skipulagið miði að því að skapa það öryggi sem sóst er eftir og að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Securitas gerir nauðsynlegar ráðstafanir eftir atvikum, útvegar búnað og starfsfólk með hliðsjón af eðli verkefnisins sem þjálfað er til mismunandi verkefna, m.a. í viðburðastjórnun sem felur í sér að hafa stjórn á mannfjölda og vera eftir atvikum meðvirka stýringu á aðstæðum meðan á viðburðinum stendur.

 

LÍFVERÐIR

Securitas hefur á að skipa lífvörðum sem hlotið hafa faglega þjálfun, bæði erlendis og á Íslandi. Við aðstæður sem kalla á sérstakar ráðstafanir og vernd mikilvægra aðila er lífvörður frá Securitas lausn sem skapar þjál, trausta og faglegaþjónustu í smáum sem stórum verkefnum, bæði til lengri eða skemmri tíma.

 

ALHLIÐA ÖRYGGI

Í krafti hins öfluga starfsliðs Securitas getur fyrirtækið boðið þjónustu sem hæfir þörfum hvers og eins þegar á reynir. Þjónusta Securitas hvað einstaklings miðaða vernd varðar, felur m.a. í sér eftirtalda þjónustuþætti:

 

  • Aðgangsstýring við svæði þar sem aðgangsstýringar er krafist
  • Almenn lífvörsluverkefni
  • VIP-þjónusta
  • Viðburðastjórnun
  • Mannfjöldastjórnun
  • Dyravarsla
  • Verðmætaflutningar
  • Fyrirbyggjandi eftirlit og frágangur
  • Ráðgjöf
  • Aðstoð við að móta öryggisstefnu
  • Áhættugreining
  • Tilfallandi sérhæfð verkefni

SÉRHÆFÐ VERKEFNI KALLA Á SÉRHÆFÐAR LAUSNIR

Þarfir viðskiptavina geta verið afar mismunandi. Í sumum tilvikum þarf að bregðast við tímabundnu ástandi með sérhæfðum lausnum. Securitas sérhæfir sig í að skilgreina viðfangsefnið og leggja uppmeð lausnir sem geta verið blanda af mannaðri gæslu og tæknilausnum. Lausnir Securitas taka ávallt mið af þörfum, áherslumog öryggishagsmunumviðskiptavinarins hverju sinni.

Algengt er að viðskiptavinir Securitas óski eftir tímabundinni aðstoð við öryggisgæslu. Securitas getur tekið slík verkefni að sér með stuttum fyrirvara. Má því tengt nefna þjónustu sem miðar að því að yfirfara húsnæði með hliðsjón af rafrænum upptöku- eða hlerunarbúnaði. Þarfir viðskiptavinar eru jafnan skilgreindar og í framhaldinu er gerður þjónustusamningur um verkefnið. Sérverkefni af þessu tagi geta bæði verið hagkvæm og sveigjanleg lausn fyrir mismunandi þarfir þjónustukaupa.

Sem dæmi um sérverkefni má nefna öryggisgæslu til skemmri tíma, dyravörslu og almenna öryggisgæslu á tónleikum, íþróttakappleikjum og stærri viðburðum af ýmsu tagi. Sérlausnir sem byggja á mönnuðu eftirliti og úrræðum af þessu tagi eru einkar hentugar þar sem erfitt getur reynst að koma við tæknilausnum.

 

LIFANDI ÖRYGGI MEÐ MANNAÐRI GÆSLU

Þrautþjálfað starfsfólk Securitas er til þjónustu reiðubúið öllum stundum. Öryggisverðir Securitas vinna af metnaði að því að stuðla að öruggara umhverfi hvar sem þeir eru að störfum. Allt frá stofnun hefur Securitas lagt áherslu á að vanda til verka við mannaráðningar, meðal annars með ítarlegri bakgrunnsskoðun og markvissri þjálfun starfsmanna. Þeir umsækjendur sem hafa staðist skoðun og eruráðnir til starfa fá markvissa þjálfun í Securitas skólanum áður en þeir teljast gjaldgengir til þess að sinna störfum fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Starfsmenn taka þátt í markvissum æfingum þar sem viðbrögð af ýmsu tagi eru æfð endurtekið, auk þess sem þeir fá framhaldsþjálfun við hæfi.

 

FYRIRHYGGJA ER HAGKVÆM

Fyrirbyggjandi aðgerðir í öryggismálum verða seint metnar til fjár. Það er auðvelt að reikna út tjón þegar skaðinn er skeður en verkefni Securitas er að takmarka eða koma í veg fyrir skaða og tjón eins og hægt er, ekki síst á því sem fæst aldrei bætt.

Það er mat yfirgnæfandi fjölda viðskiptavina að öryggisverðir Securitas standi undir því trausti sem þeim er sýnt þar sem þeir leggja jafnan áherslu á að standa vörð um öryggi viðskiptavina með þekkingu sína og þjálfun að vopni.

 

 

 

TRAUST SKAPAR TRAUST

Gildi Securitas eru: árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi. Rúmlega þriggja áratuga reynsla staðfestir að störf öryggisvarða uppfylla þau fyrirheit fullkomlega. Það geta fjölmargir viðskiptavinir okkar borðið vitni um. Niðurstaðan er að hjá Securitas ertu í öruggum höndum.

 

Kynntu þér nánar öryggissvið Securitas á heimasíðu okkar securitas.is eða hafðu samband við okkur síma 5807000 eða sendu póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Námskeið - Ráðgjöf

Ráðgjöf
Í stórum hópi starfsmanna Securitas er að finna starfsmenn með áralanga og víðtæka reynslu á sviði öryggismála. Margir þessara starfsmanna eru meðal fremstu sérfræðinga á sínu sviði og hafa því verið fengnir til ráðgjafastarfa og til þess að sitja í ráðum og nefndum sem fjalla um hvers konar öryggismál í samfélaginu. Securitas getur boðið ráðgjöf á ýmsum sviðum öryggismála án þess að því fylgi nokkur skuldbinding um að búnaður eða þjónusta sé keypt af fyrirtækinu.

Námskeið
Securitas hefur um árabil haldið námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir þar sem hæfni starfsmanna þeirra til að geta brugðist við frávikum í öryggislegu tilliti er aukin.

Námskeiðin eru skipulögð með hliðsjón af áherslum og óskum viðskiptavinarins hverju sinni. Algengt er að námskeiðin byggi á því að þjálfa hluta starfsmanna í meðferð handslökkvibúnaðar, skyndihjálp og viðbrögðum við neyðaruppákomum á vinnustað, þannig að þessir starfsmenn geti tekið frumkvæði þegar viðbragða er þörf. Tilnefndir starfsmenn skipa sérstaka öryggissveit innan fyrirtækisins og hafa það hlutverk að leiða samstarfsmenn í viðbrögðum, meðal annars ef til húsrýmingar kemur.

Rán og hnupl eru að verða nánast daglegt brauð í verslunum, söluturnum og bensínstöðvum. Slíkir atburðir hafa í för með sér ótta og vanlíðan meðal starfsmanna og viðskiptavina sem verða fyrir uppákomum af þessu tagi. Securitas hefur í samstarfi við Samtök verslunar og þjónustu ásamt lögreglunni í Reykjavík boðið námskeið sem kölluð eru „Varnir gegn vágestum“ til að fyrirtækin geti betur tryggt sig gegn þjófnuðum og ránum og þeim skaða sem þeim fylgir. Securitas hefur séð um fræðsluhluta verkefnisins.

Verslanir sem taka þátt í verkefninu Varnir gegn vágestum minnka jafnan hættuna á rýrnun vegna hnupls þar sem starfsmenn sem hafa sótt námskeiðið koma markvisst í veg fyrir hnupl í versluninni. Verkefnið byggir á því að allir starfsmenn taki þátt í því. Það eykur bæði hæfni og öryggi starfsmanna hvað þennan vanda varðar.

Verslunarkeðjur, olíufélög, einstaka verslanir og þjónustufyrirtæki hafa þegar keypt slík námskeið fyrir starfsmenn sína og hafa hlotið vottun lögreglunnar á sölustaði. Bjóða verður námskeiðin reglulega til þess að viðhalda vottun lögreglu. Sýnt er að hnupl og innbrot eru færri hjá þessum aðilum en ýmsum öðrum sem hafa ekki haldið slík námskeið eða gert ráðstafanir sem farið er fram á til þess að öðlast vottun og geta merkt verslunina í samræmi við það.

Staðbundin gæsla

farandgaeslaVeigamikill þáttur í þeim öryggislausnum sem stærri fyrirtæki eða stofnanir byggja oft á er að viðkomandi aðilar hafi vel þjálfaða staðbundna öryggisverði í þjónustu sinni. Hlutverk þeirra er að sjá til þess að reglum varðandi umgengni og frágang sé fylgt og að áherslum í samþykktri öryggisstefnu viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar sé einnig almennt fylgt eftir. Fyrirkomulagi og framkvæmd staðbundinnar öryggisgæslu má annars í stuttu máli lýsa þannig: Staðbundinn öryggisvörður sinnir skilgreindum verkefnum og almennu fyrirbyggjandi eftirliti á staðnum, hefur umsjón með öryggiskerfum og bregst við ef eitthvað ber út af í öryggislegu tilliti.

Hlutverki öryggisvarða er jafnan lýst í ítarlegri handbók öryggisvarða, sem samin er í samráði við þjónustukaupa fyrir hvert verkefni. Handbókinni er ætlað að ramma inn starf og hlutverk öryggisvarða á staðnum, auk þess sem í handbókinni er að finna nauðsynlegar upplýsingar fyrir öryggisverði þannig að þeir geti sinnt hlutverki sínu.

Eðli málsins samkvæmt eru öryggisverðir í staðbundinni gæslu alfarið staðsettir á gæslustað þjónustukaupa, sem getur verið eitt eða fleiri aðliggjandi hús eða athafnasvæði. Gæsluverkefnið er skilgreint nánar í þjónustusamningi sem gerður er á milli aðila um verkefnið. Í mörgum tilvikum byggir þjónustukaupi á staðbundinni öryggisgæslu allan sólarhringinn. Þá vinna öryggisverðir á vöktum og geta haft ólíkum verkefnum að gegna, eftir því hvort um dag- eða næturtíma er að ræða, virkan dag eða helgi.

Öryggisverðir í staðbundinni gæslu hafa jafnan hlotið víðtæka þjálfun. Þjálfuninni er haldið við með reglulegri upprifjun, æfingum og framhaldsþjálfun eftir því sem við á. Námskeiðin taka mið af því að þjálfa öryggisverði í því að stunda markvisst fyrirbyggjandi eftirlit, þekkja virkni öryggiskerfa og almenns rekstrarbúnaðar og að öðlast þekkingu í því hvernig þeir skuli bregðast við ef eitthvað ber út af í öryggislegu tilliti. Þá þurfa öryggisverðir fyrirtækisins að sækja viðurkennd námskeið í skyndihjálp, námskeið í meðferð handslökkvibúnaðar og hvernig þeir geti tryggt eigið öryggi sem best, svo eitthvað sé nefnt.

Hlutverk öryggisvarða í staðbundnum verkefnum er jafnan að tryggja almennt öryggi á staðnum, sjá um símsvörun, móttöku og aðgangsstýringu eða viðhalda lokun á aðgengi utan daglegs vinnutíma auk þess að vera eftirlitsaðili með hvers konar öryggisþáttum á staðnum.

Starf staðbundinna öryggisvarða er oft nokkuð fjölþætt. Þeir gegna afar mismunandi hlutverki í þeim verkefnum sem fyrirtækið tekur að sér. Hlutverkið getur verið allt frá því að sinna símsvörun og móttöku starfsmanna og gesta í fyrirtækið til þess að sinna beinu öryggiseftirliti frá miðlægri aðstöðu öryggisvarða, svokölluðu Security Center. Í slíkri aðstöðu er endabúnaður öryggiskerfa staðsettur, skjáir öryggismyndavélakerfa auk ýmiss konar eftirlitsbúnaðar fyrir hvers konar rekstrarbúnað viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Öryggismálum á staðnum er jafnan stjórnað úr aðstöðunni og þaðan eru viðbrögð ákveðin þegar eitthvað fer úrskeiðis eða neyðarástand skapast.
Þá er almennt byggt á því fyrirkomulagi að öryggisverðir í staðbundinni gæslu fara í reglubundnar eftirlitsferðir um gæsluverkefnið skv. þeim fyrirmælum sem fram koma í handbók öryggisvarða. Með eftirlitsferðunum á að tryggja að frágangur og almennt ástand sé í samræmi við verklagsreglur og áherslur þjónustukaupa. Viðkoma öryggisvarða í eftirlitsferðum er staðfest með rafrænni skráningu.

Stjórnstöð Securitas hefur eftirlit með öryggi og viðveru öryggisvarða í staðbundnum verkefnum. Öflugt fjarskiptakerfi og neyðarkerfi, TETRA, tryggir örugg samskipti og tengingu öryggisvarða í staðbundnum verkefnum við traust bakland Securitas, svo sem við stjórnstöð og fjölmarga öryggisverði í farandgæslu sem eru stöðugt á ferðinni um allt höfuðborgarsvæðið.
Innra gæðaeftirlit Securitas tekur út verklag og framkvæmd á starfi öryggisvarða. Það aðhald tryggir að farið sé eftir verklagsreglum Securitas og áherslum og að þjónustan sé almennt í samræmi við væntingar þjónustukaupa.

Verðmætaflutningar

farandgaeslaSecuritas hefur verið leiðandi í verðmætaflutningum á Íslandi í tæpa þrjá áratugi. Reynsla og fagmennska skiptir miklu máli þegar kemur að þjónustu eins og verðmætaflutningum. Þessi þjónustuþáttur hefur vaxið umtalsvert á liðnum árum, ekki síst vegna aukinnar kröfu um meira öryggi í flutningi fjármuna á milli staða og aukinna verðmæta í umferð. Securitas hefur mætt aukinni þörf á verðmætaflutningum með fagmennsku og heilsteyptum þjónustulausnum sem hafa meðal annars verið teknar út af erlendum fagaðilum á þessu sviði. Framkvæmdin í þeim úttektum hefur almennt hlotið mikið lof.

Í verðmætaflutningum starfa vel þjálfaðir öryggisverðir með bakgrunn úr öryggisgæslu og annarri neyðarþjónustu. Flestir öryggisverðir sem sinna þessari þjónustu hafi því unnið um árabil hjá fyrirtækinu áður en þeir teljast gjaldgengir í verðmætaflutninga fyrirtækisins. Þeir eru valdir úr stórum hópi umsækjenda í hvert sinn sem staða í verðmætaflutningadeild fyrirtækisins er auglýst, en hjá fyrirtækinu starfa um 230 öryggisverðir. Þeir öryggisverðir sem svo eru valdir til starfa í deildinni eru sérstaklega þjálfaðir skv. erlendri fyrirmynd og þurfa að standast ýmsar kröfur varðandi bakgrunn, reynslu og líkamlegt atgervi.

Öryggisverðir í verðmætaflutningum eru búnir öflugum varnarbúnaði og vinna samkvæmt ítarlega skilgreindu verklagi, þar sem agi og formfesta eru lykiláherslur. Verðmæti í flutningi eru varin með besta fáanlega búnaði, auk þess sem flutningsaðilar eru undir stöðugri rafrænni ferilvöktun stjórnstöðvar. Securitas býður ábyrgð á þeim verðmætum sem flutt eru á meðan þau eru í flutningi og í vörslu starfsmanna fyrirtækisins.

Stjórnstöð Securitas stjórnar viðbrögðum við öll frávik frá þeim verkferlum sem unnið er eftir. Öflugt fjarskiptakerfi og neyðarkerfi, TETRA, tryggir hámarksöryggi í samskiptum.

Valkostir í verðmætaflutningum:
DAGLEGIR FLUTNINGAR
Hentar þeim sem eru með mikla daglega veltu. Sérþjálfaðir öryggisverðir taka við þeirri fyrirhöfn og áhættu sem fylgir því að fara með uppgjör fyrirtækis í banka.
AFRITUN OG VARSLA GAGNA
Á liðnum árum hefur færst í vöxt að fyrirtæki vilji eiga afritunarspólur úr rekstri fyrirtækisins á öruggum stað utan fyrirtækisins. Securitas hefur því boðið þá þjónustu að sækja afritunarspólur úr tölvukerfi fyrirtækja til varðveislu utan fyrirtækisins. Ráðstafanir sem þessar koma í veg fyrir að upplýsingar úr tölvukerfi fyrirtækisins glatist við hugsanlegan bruna, innbrot eða skemmdarverk, vatnsleka eða aðra vá.
SÉRVERKEFNI
Securitas tekur að sér fjölmörg sértæk verkefni í verðmætaflutningum í tengslum við sérstaka álagstíma, s.s. fyrir jól, útsölur, sýningar, tónleikahald og fleira.
ÁFYLLING Á HRAÐBANKA
Securitas hefur um árabil séð um áfyllingar á hraðbanka fyrir banka og fjármálastofnanir utan höfuðstöðva þeirra. Securitas býður öruggan og fumlausan flutning á verðmætum þar sem skýrum og öguðum verkferlum er fylgt auk þess sem flutningurinn er fjarvaktaður. 

Öryggisráðgjafar Securitas veita frekari upplýsingar í síma 580 7000 og þeir aðstoða við að finna lausnir sem henta hverjum og einum.

Farandgæsla

farandgaeslaÞegar Securitas var stofnað 1979, byggði starfsemin eingöngu á hefðbundinni farandgæslu. Segja má að farandgæslan hafi skapað grunn að öðrum þjónustuþáttum fyrirtækisins auk þess að vera grunnurinn að því viðbragðsafli sem fyrirtækið byggir á vegna boða frá öryggiskerfum sem eru tengd stjórnstöð fyrirtækisins.

Fyrirtækið er með tugi öryggisvarða í farandgæslu á Höfuðborgarsvæðinu. Þeir sinna eftirlitsverkefnum í öryggisgæslu allan sólarhringinn, alla daga ársins fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana.

Farandgæsla felur í sér að öryggisvörður hefur í sinni umsjá, tiltekinn fjölda fyrirtækja og stofnana innan ákveðins borgarhluta sem telst til hans vaktsvæðis. Verklag og starfsaðferðir farandgæslu taka mið af þjónustusamningi auk þess sem þjónustan er framkvæmd í samráði við áherslur þjónustukaupa, til að tryggja að væntingar séu í samræmi við framkvæmdina. Ítarleg verklýsing er samin fyrir hvert verkefni í farandgæslu, en verklýsingar eru unnar í náinni samvinnu við þjónustukaupa.

Öryggisverðir farandgæslu hafa hlotið víðtæka þjálfun, m.a. vegna umgengni við hvers konar öryggiskerfi og áherslna sem byggt er á vegna fyrirbyggjandi eftirlits við mismunandi aðstæður, auk þjálfunar í skyndihjálp, meðferð handslökkvibúnaðar og viðbrögðum við hvers konar frávikum í öryggislegu tilliti. Þjálfun öryggisvarða byggir auk þess bæði á símenntun varðandi þau öryggiskerfi sem fyrirtækið selur og þjónustar auk framhaldsnámskeiða sem er ætlað að auka hæfni öryggisvarða til að sinna starfi sínu á faglegan hátt og tryggja sem best eigið öryggi í starfi.

Starf öryggisvarða í farandgæslu er fjölþætt. Farandgæslan byggir á að farnar eru eftirlitsferðir um fyrirtækið, utan sem innan, og með því farið yfir að allur frágangur sé í lagi. Þegar öryggisvörður fer inn í fyrirtæki er það hlutverk hans að yfirfara að frágangur sé í samræmi við verklagsreglur og óskir verkkaupa. Má þar nefna sem dæmi; frágangur véla og rafmagnstækja sé í lagi, frágangur á hurðum og opnanlegum gluggafögum sé góður, skrúfað sé fyrir rennandi vatn og að annar frágangur sé í samræmi við áherslur og óskir þjónustukaupa.

Algengt er að öryggisverðir farandgæslu sjái um að fara ítarlega eftirlitsferð í fyrirtækjum í lok dags, þannig að tryggt sé að frágangur sé í lagi fyrir nóttina og áður en öryggiskerfi eru varðsett. Þetta eru eftirlitsferðir sem koma sér einkar vel í fyrirtækjum þar sem óljóst er hver ber ábyrgð á frágangi í lok dags.

Sérþekking og þjálfun öryggisvarða Securitas varðandi aðstæður og áhættur í öryggislegu tilliti tiltekins viðskiptavinar standa að baki gluggamerkinga Securitas um að fyrirtæki sé „vaktað“.

Eitt af meginhlutverkum öryggisvarða í farandgæslu er að sinna útköllum vegna boða frá öryggiskerfum. Stjórnstöð Securitas hefur yfirsýn yfir fjölda öryggisvarða farandgæslu og staðsetningu þeirra hverju sinni með aðstoð ferilvöktunarbúnaðar. Með þeirri yfirsýn er stjórnstöð í lófa lagið að stýra öryggisvörðum í útköll vegna boða frá öryggiskerfum eða ef aðstoðar er þörf. Öflugt fjarskiptakerfi og neyðarkerfi, TETRA, tryggir hámarksöryggi í samskiptum.

Innra gæðaeftirlit Securitas fer yfir alla þætti í starfi öryggisvarða. Það aðhald tryggir að farið sé eftir verklagsreglum og að þjónustan sé í samræmi við væntingar þjónustukaupa.

Sérstök verkefni

farandgaeslaÞarfir viðskiptavina geta verið afar ólíkar en í sumum tilvikum er um tímabundnar þarfir að ræða. Securitas sérhæfir sig í að skilgreina lausnir sem geta verið blanda af mannaðri gæslu og tæknilausnum en þær eru umfram allt byggðar á þörfum og áherslum þjónustukaupa hverju sinni og taka mið af því að tryggja öryggishagsmuni hans.

Algengt er að viðskiptavinir fyrirtækisins þurfi á aðstoð við öryggisgæslu að halda tímabundið vegna sérstakra aðstæðna. Oftast er um tímabundið verkefni að ræða sem Securitas getur tekið að sér með stuttum fyrirvara. Þarfir viðskiptavina eru sérstaklega skilgreindar og gerður er þjónustusamningur um verkefnið. Hann tekur mið af skilgreindum þörfum, áherslum og tímamörkum vegna verkefnisins. Sérverkefni af þessu tagi eru því þjál lausn fyrir þjónustukaupa til þess að mæta tímabundnum þörfum hans um aukið öryggi og sérsniðna lausn með hliðsjón af því.

Sem dæmi um sérverkefni má nefna staðbundna öryggisgæslu í skilgreindan tíma, dyravörslu og almenna gæslu á tónleikum, íþróttakappleikjum og stærri viðburðum af ýmsu tagi. Sérverkefnalausnir, sem taka mið af mönnuðu eftirliti af þessu tagi, eru einkar hentugar lausnir þar sem erfitt er að koma tæknilausnum við.