Securitas

5807000

Smelltu hér

Firmavörn

Í ljósi þess mikilvægis að huga vel að öryggismálum þíns fyrirtækis, hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þínu fyrirtæki.

Fyrst langar okkur að benda á lausn sem gæti hentað þínu fyrirtæki. 
Firmavörn er beintengd stjórnstöð Securitas og gerir viðvart ef:

  • Reykur er í fyrirtækinu
  • Vatns- eða gasleki kemur upp
  • Óæskilegur umgangur er um fyrirtækið 

VAKT
Sólarhringsvakt er í stjórnstöð og bregst starfsfólk samstundis við boðum og vinnur úr þeim eftir skýru verklagi. Securitas býr yfir fljótu og öruggu viðbragði, en allan sólarhringinn er fjöldi bíla á eftirlitsferðum og þannig er viðbragðstími lágmarkaður.

INNBROTAVIÐVÖRUN
Hreyfiskynjarar og skynjarar eru á hurðum og gluggum og senda boð um óæskilegan umgang til stjórnstöðvar og sírena á staðnum gerir viðvart.

BRUNAVÖRN
Reykskynjarar eru alltaf virkir og tengdir stjórnstöð Securitas.

 

SKYNJARAR Á LYKILSTÖÐUM
Firmavörn Securitas samanstendur af stjórneiningu, lyklaborði, sírenu og þeim fjölda skynjara sem henta hverju fyrirtæki. Firmavörnin er aðlöguð starfsemi þíns fyrirtækis m.t.t. starfsemi og stærðar þess.

GRUNNBÚNAÐUR FIRMAVARNAR SAMANSTENDUR AF:
Hreyfiskynjurum
Reykskynjurum
Hurðarskynjurum
Auk þessu má bæta við öðrum búnaði eins og nauðsyn þykir fyrir hvert fyrirtæki.

ENGINN STOFNKOSTNAÐUR
Fyrirtækið greiðir engan kostnað fyrir uppsetningu á Firmavörn. Kerfið er sett upp hratt og örugglega. Einungis er greitt mánaðarlegt þjónustugjald sem felur í sér fjarvöktun kerfisins og viðhald þess. Gerður er þjónustusamningur um reglubundna úttekt kerfisins.

 

Aðgangsstýrikerfi

hid advantage

Með aðgangsstýrikerfi Securitas er hægt að stjórna aðgangi starfsfólks um húsnæði fyrirtækisins. Aðgangskort koma í stað lykla að hurðum fyrirtækisins, bæði inni- og útihurðum. Allur umgangur um fyrirtækið skráist í dagbók kerfisins og er rekjanlegur. Aðgangsstýrikerfi gefur fullkomna yfirsýn yfir það hverjir ganga um fyrirtækið, hvar og hvenær. Securitas býður fjölbreyttar lausnir í aðgangsstýringum, bæði sambyggð aðgangs- og innbrotakerfi og þráðlaus aðgangsstýrikerfi.

LYKLALAUST HÚSNÆÐI
Með aðgangsstýrikerfi skapast lyklalaust umhverfi, ef kort týnist eða starfsmaður hættir er auðvelt að gera það óvirkt.

SJÁLFVIRK DAGBÓK UM UMGENGNI
Í dagbókinni kemur fram hver gengur um hvaða hurðir og á hvaða tíma. Einnig hvort notendur kerfisins reyna að ganga um hurðir sem þeir hafa ekki aðgang að.

AUÐVELD AÐGANGSSTÝRING
Hver notandi fær aðeins aðgang að þeim hurðum sem hann þarf að hafa aðgang að, en auðvelt er að breyta aðgangsheimildum notenda.

AÐGANGSKORT OG AUÐKENNISKORT
Á aðgangskortin er hægt að prenta nafn og merki fyrirtækisins, setja mynd af starfsmanni, nafn hans og ábyrgðasvið, þannig að þau nýtist einnig sem auðkenniskort.

TÍMASTÝRÐAR HURÐIR
Hægt er að láta hurðir læsast eða aflæsast sjálfvirkt á mismunandi tímum sólarhringsins.

Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við sýnum þér þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.

Slökkvikerfi

triangle2Til að eldur geti logað þá þarf þrennt að vera til staðar, hiti, súrefni og eldsmatur. Þessu er lýst með svokölluðum brunaþríhyrningi eins og sýnt er hér til hliðar.

Securitas býður þrjár megingerðir af slökkvikerfum. Þessar þrjár gerðir slökkva eld með ólíkum hætti. Hver þeirra fjarlægir eitt horn af þessum þríhyrningi. Novec 1230 fjarlægir hita, Inergen minnkar súrefnið í rýminu úr 21% niður í 12,5% sem er skaðlaust fyrir menn en eldur slokknar. Stat-X sem er Aerosol efni rýfur efnaferlið sem verður við bruna og fjarlægir þannig eldsmat.

Þessi kerfi eiga það sameiginlegt að vera öflugir slökkvimiðlar og þau eru skaðlaus mönnum og umhverfi. Ekki þarf að framkvæma neinar sérstakar ráðstafanir eftir afhleypingu Inergen og Novec 1230 aðrar en að endurhlaða og virkja kerfið. Þegar hleypt er af Aerosol kerfum myndast ryk sem byrgir sýn fyrst á eftir afhleypingu. Þetta ryk þarf að þrífa.

Securitas býður þér einnig hraðvirkar og öruggar eldvarnir, sem standast ströngustu kröfur. Slökkvikerfin byggjast á notkun efnanna NOVEC 1230 og INERGEN
sem og Stat-X AEROSOL slökkvimiðli. Einnig höfum við GLORIA og FLN slökkvitæki.

 

 novec inergen

Vöruvernd

Securitas býður víðtæka vöruverndarlínu fyrir verslanir og fyrirtæki. Vöruverndarhliðin eru nú þegar búin að sanna ágæti sitt á Íslandi og má nefna að stærri verslanamiðstöðvar hafa tekið þau í notkun. Hægt er að setja upp hliðin í fjölmörgum útfærslum og mætti  nefna velheppnaðar uppsetningar víða í stærri sem smærri verslunum og fyrirtækjum.

 Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við erum tilbún að aðstoða þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.

Brunaviðvörunarkerfi

notifier logo

Securitas býður gerðir af brunaviðvörunarkerfum sem uppfylla mismunandi þarfir notanda. Úrvalið tryggir að ávallt er hægt að velja hagkvæmustu lausnina fyrir viðskiptavininn. Smærri kerfi eru gjarnan RÁSASKIPT KERFI en þegar um stærri kerfi er að ræða eru þau NÚMERUÐ KERFI.  Krafa er gerð í Byggingarreglugerð að sett skuli upp sjálfvirk brunaviðvörunarkerfi í byggingum sem eru ætlaðar til ákveðinna nota. Dæmi um það eru skrifstofu-, verslunarhúsnæði, skólar, veitingahús, dagvistunarstofnanir, iðnaðarhúsnæði og fleiri húsnæði.

Þegar gerð er krafa um að sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi skuli vera í húsnæðinu er jafnframt gerð krafa um að brunastöðin sé af viðurkenndri gerð og sé tengd viðurkenndri vaktstöð sem vaktar boð frá kerfinu og bregst við boðum frá því. Einnig er gerð krafa um að gerður sé þjónustusamningur um skoðun og viðhald brunaviðvörunarkerfisins við viðurkenndan aðila. Securitas er með viðurkennda vaktstöð sem tekur á móti boðum frá brunakerfum og bregst við boðum frá þeim. Securitas veitir einnig sérhæfða þjónustu við reglubundnar skoðanir brunakerfa.

Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og við erum tilbúin að aðstoða þig við að finna þær lausnir sem best henta þér og þínu fyrirtæki.

Skip og bátar

Hvort sem þú ert með bát eða skip býður Securitas mikið úrval af öryggisbúnaði sem hentar þínum þörfum. Líkt og skrifstofur fyrirtækisins þurfa skip fullkomið öryggiskerfi, með brunavörnum og slökkvitækjum. Slökkvikerfi fyrir vélarrými hafa margoft sannað gildi sitt og gildir þá einu hvort um sé að ræða vélarrými í togara eða smábát.

Slökkvikerfi
Frá vatnabátum og upp í frystitogara. Slökkvikerfinu er komið fyrri í vélarrými skipsins. Þegar vart verður elds í rýminu, fyllir það rýmið af slökkvigasi, sem er hættulaust mönnum og dýrum, en kæfir allan eld með því að lækka súrefnismagnið í rýminu niður fyrir þau mörk sem eldur þarf til að viðhalda sér.

Brunavarnir
Securitas býður allar gerðir slökkvibúnaðar, svo sem slökkvitæki, teppi, slöngur, merkingar og ljós. Allt sem þú þarft á einum stað.

Öryggiskerfi
Fullkomið öryggiskerfi vaktar skipið og sendir boð til vaktstöðvar, eða annarra aðila og tryggir þannig vöktun á flestum stöðum í heiminum.

Eftirlit
Tæknimenn Securitas eru vottaðir af Siglingastofnun Íslands, sem úttektaraðilar fyrir brunaviðvörunarkerfi og slökkvitæki skipa og báta. Margra ára reynsla og hágæðavara tryggir lægri viðhalds- og rekstrarkostnað, samhliða bættu öryggi um borð.

Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og fáðu nánari upplýsingar um þær öryggislausnir sem henta þér.