Firmavörn

FIRMAVÖRN SECURITAS
- veldu öryggi í stað áhættu

Eigendur fyrirtækja gera sér í auknum mæli grein fyrir mikilvægi þess að huga vel að öryggismálum síns fyrirtækis. Firmavörn Securitas vaktar fyrirtækið allan sólarhringinn, allan ársins hring. Hún er beintengd stjórnstöð Securitas þar sem við erum ávallt í viðbragðsstöðu.

ÖRUGGT FYRIRTÆKI MEÐ FIRMAVÖRN
Firmavörn er beintengd Stjórnstöð Securitas og gerir viðvart ef:
Reykur er í fyrirtækinu
Vatns- eða gasleki kemur upp
Óæskilegur umgangur er um fyrirtækið

 

VAKT
Stöðug vakt er í stjórnstöð og bregst starfsfólk samstundis við ef eitthvað bjátar á. Securitas býr yfir víðtæku öryggisneti, en á hverri nóttu er fjöldi bíla á eftirlitsferðum og því koma öryggisverðir Securitas skjótt á vettvang. 

  INNBROTAVIÐVÖRUN
Hreyfiskynjarar og skynjarar á hurðir og glugga nema ef óæskilegur umgangur er um fyrirtækið og sírena gerir viðvart.
  BRUNAVÖRN
Reykskynjarar eru stöðugt tengdir Stjórnstöð Securitas..

SKYNJARAR Á LYKILSTÖÐUM
Taka verður tillit til mismunandi þarfa fyrirtækja þegar öryggiskerfi er sett upp. Firmavörn Securitas samanstendur af stjórneiningu, lyklaborði, sírenu og þeim fjölda skynjara sem henta hverju fyrirtæki.

LYKILBÚNAÐUR FIRMAVARNAR SAMANSTENDUR AF:
Hreyfiskynjurum
Reykskynjurum
Hurðarskynjurum
Auk þessu má bæta við öðrum búnaði eins og nauðsyn þykir fyrir hvert fyrirtæki.

ENGINN STOFNKOSTNAÐUR
Fyrirtækið greiðir engan kostnað fyrir uppsetningu á Firmavörn, við komum með kerfið á staðinn og setjum það upp hratt og örugglega. Mánaðarlegt leigugjald Firmavarnar felur í sér fjarvöktun kerfisins, viðhald þess og útköll öryggisvarða allan daga ársins. Einnig er gerður þjónustusamningur við hvert fyrirtæki um reglunbundna úttekt kerfisins.

Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 eða á firmavorn@securitas.is og við aðstoðum þig við að finna þær lausnir sem best henta þínu fyrirtæki.

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070