Á dögunum var ritað undir samning milli Securitas og Olís um Verslunarþjónustu Securitas. Hann felur í sér að Securitas mun sjá um afgreiðslu og öryggiseftirlit að næturlagi hjá Olís í Álfheimum og Norðlingaholti. En þær stöðvar eru opnar allan sólarhringinn frá og með 1. júní.
 Frá undirritun samnings: Sigurjón Bjarnason rekstrarstjóri þjónustöðva Olís og ÓB og Guðmundur Arason forstjóri Securitas.
|