Fréttir Nánar

Eimskip endurnýjar samninga um öryggisþjónustu við Securitas

Nú í vikunni var staðfest með undirskrift á nýjum þjónustusamningi að framhald verði á áralöngu farsælu  samstarfi Securitas og Eimskips á sviði öryggismála. Securitas hefur um árabil þjónustað Eimskip með hverskonar öryggislausnir, blandaðar tæknilausnir og mannaða þjónustu.   Segja má að Securitas hafi tekið þátt í að móta öryggismálin með félaginu, því margt hefur breyst á þeim um það bil 25 árum sem liðin eru frá því að samstarfið hófst. Aðstaða Eimskips í Sundahöfninni er á liðnum árum orðin afar nútímaleg og með því besta sem finna má í flutningsgeiranum á Íslandi og þó víðar væri leitað.

Aðstaðan gerir félaginu bæði kleyft  og skylt að  gera auknar kröfur um öryggi á svæðinu, en markvisst hefur verið unnið í þeim efnum á liðnum árum. Securitas er stolt af því að taka þátt í þeirri vinnu með félaginu og að fá tækifæri til þess að  aðstoða við að móta faglegar öryggislausnir  á sem flestum sviðum.  


Á myndinni eru:
Eyþór Ólafsson öryggisstjóri Eimskips, Hilmar Pétur Valgarðsson fjármálastjóri Eimskip sem undirritaði samninginn fyrir hönd Eimskips, Árni Guðmundsson framkvæmdasjóri gæslusviðs Securitas, Benedikt Ingi Elísson forstöðumaður fasteigna-trygginga og öryggismála hjá Eimskip, Guðmundur Arason forstjóri Securitas sem undirritaði samninginn fyrir Securitas, Þröstur Sigurðsson viðskiptastjóri Securitas fyrir Eimskip og Agnar Þ Agnarsson öryggisfulltrúi.

« Til baka

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070