Hverfagæsla Securitas í Reykjanesbæ
19 desember 2008
Securitas og Reykjanesbær hafa gert með sér samning um Hverfagæslu til reynslu frá 19. des. til loka janúar.
Þjónustan felur í sér að mannaður, sérmerktur bill ekur um hverfi bæjarins og hefur vakandi auga með óæskilegri umferð, eftirlit með eignum íbúa og sveitarfélagsins. Þá verður fylgst m eð hópamyndun barna og unglinga, frágangi á byggingasvæðum og öðru sem athygli vekur.
Lesa meira |
Securitas tekur að sér þjónustu við viðskiptavini StoreVision á Íslandi.
4 nóvember 2008
Securitas hefur tekið að sér þjónustu við viðskiptavini StoreVision á Íslandi og samhliða því gert samning við StoreVision Nordic AS sem er danska félagið sem á tæknilausnina og vörumerkið. Securitas er því nú með einkarétt á lausninni og vörunni á Íslandi.
Lesa meira |
Öryggisvarðaskóli
15 september 2008
Nám fyrir starfandi öryggisverði hófst 2. September. Mikill áhugi er fyrir náminu og hefur undirbúningur staðið í annað ár. Nemendur koma frá Securitas og Öryggismiðstöðinni sem og margir leiðbeinenda. Námið er 300 kennslustundir, tekur 2 annir og er metið til 24 eininga á framhaldsskólastigi.
Lesa meira |
Landsspítalinn og Securitas í samstarf
16 júní 2008
Samkvæmt nýjum samningi munu öryggisverðir Securitas gæta sjúklinga á Landspítala. Þeir fá viðeigandi þjálfun og vottun frá LSH áður en þeir hefja störf.
Nýverið skrifuðu forsvarsmenn Landspítala (LSH) og Securitas undir þjónustusamning um yfirsetur yfir sjúklingum á spítalanum. Öryggisverðir Securitas munu gæta þeirra sjúklinga sem vegna aðstæðna þarfnast stöðugs eftirlits. Securitas hóf þessa þjónustu við LSH í forföllum starfsfólks sjúkrahússins árið 2006 og hefur eftirspurnin aukist síðan. Því var komin tími til , að mati beggja aðila, að ganga til samninga.
Lesa meira |
Hverfagæsla Securitas ber góðan árangur.
27 maí 2008
Frá því að bæjarstjórn Seltjarnarness gerði samning við Securitas um hverfagæslu í kjölfar innbrotahrinu árið 2005 var ekkert innbrot framið í bænum fyrr en á vormánuðum 2007, að því er Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri greinir frá.
„Það var innbrota- og skemmdarverkahrina hér á fyrstu fimm mánuðum ársins 2005. Þá voru framin hér 11 eða 12 innbrot. Þetta var ástand sem við vildum ekki að yrði viðvarandi þótt það væri skárra en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.“ segir Jónmundur.
Lesa meira |