Securitas gerist einn aðalstyrktaraðili Forvarnahússins
13 nóvember 2009
Föstudaginn 6. nóv. var ritað undir samstarfsamning milli Forvarnahússins og Securitas, þar sem Securitas gerist einn aðalstyrktaraðili Forvarnarhússins. Með þessari undirskrift var farsælt samstarf Securitas og Forvarnahússins síðan 2006 framlengt til þriggja ára. Forvarnahúsið er fræðslumiðstöð þar sem forvarnir bæði innan heimilis sem og utan eru kynntar. Markmið Forvarnahússins er að efla og samræma forvarnir í landinu. Starfsmenn Forvarnahússins starfa með fyrirtækjum, félagasamtökum og opinberum aðilum um eflingu og samhæfingu slysvarna. Securitas er leiðandi fyrirtæki á sviði öryggismála og hefur um árabil boðið alhliða öryggislausnir s.s. bruna- og innbrotavarnir fyrir heimili og fyrirtæki og verða þær áfram kynntar í Forvarnahúsinu.
Lesa meira |
Securitas Reykjanesi á Ljósanótt 2009
4 september 2009
Sýningin Reykjanes 2009 verður opnuð í dag í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Sýningin verður opin dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri" og þar verður kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu.
Lesa meira |
Útilegukortið 2009 með Heimavörn Securitas
22 apríl 2009
Útilegukortið 2009 fylgir sem kaupauki með Heimavörn Securitas í apríl og maí. Kortið veitir eiganda, maka og börnum kost á að gista frítt á yfir 30 tjaldsvæðum um land allt. Njóttu þess að ferðast áhyggjulaus um Ísland í sumar og láttu okkur passa heimilið á meðan.
Lesa meira |
Securitas við hafnargæslu
19 mars 2009
Faxaflóahafnir og Securitas hafa gert með sér saming um staðbundna hafnargæslu við Grundartangahöfn. Hafnargæslan er hluti af verndarráðstöfunum til að uppfylla kröfur um hafnarvernd í samræmi við lög um siglingavernd. Starfsmenn Securitas munu hafa eftirlit með hafnarsvæðinu, stýra aðgangi og umferð um haftasvæði og sinna almennri öryggisgæslu á svæðinu.
Hafnargæsla Securitas við Grundartangahöfn hefst 1. apríl nk.
Lesa meira |
Verslunarþjónusta Securitas í allar verslanir 10-11
22 desember 2008
Securitas og 10-11 hafa gert með sér samning um að Securitas sjái um verslunarþjónustu fyrir allar verslanir 10-11 frá kvölds til morgna. Verslanir 10-11 um allt land eru opnar allan sólarhringinn, alla daga ársins. Securitas mun manna verslanirnar frá og með 1. febrúar 2009.
Lesa meira |