Fréttir

Securitas hlaut starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs 2009

Securitas hlaut Starfsmenntaverðlaun Íslands árið 2009.

Securitas hlaut Starfsmenntaverðlaunin 2009 í flokki fyrirtækja fyrir framúrskarandi árangur í menntunarmálum starfsfólks en verðlaunin voru veitt þann 27.nóvember síðastliðinn.  Starfsmenntaverðlaunin eru mikil viðurkenning fyrir mannauðs-og fræðslustefnu Securitas en undanfarin ár hefur fræðsla og þróun verið ein af lykiláherslum Securitas.  Mánaðarlega mælir Securitas stöðu sína í starsfmannamálum þ.e. upplifun allra starfsmanna af fræðslu, þjálfun, þróun, starfsánægju  sem og fleiru.  Á öllum sviðum fyrirtækisins er skýr stefna í þjálfun, menntun og símenntun og hvetur Securitas starfsmenn sína til náms með vinnu.  Securitas er með samninga við kennslustofnanir um fjarnám tengt upplýsingatækni fyrir allt sitt starfsfólk.  Securitas átti þátt í að stofna sérhæft Öryggisvarðanám sem byggir á námsskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er kennt í Mími-símenntun.  Námið er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu til allt að 24 eininga á framhaldsskólastigi en aðalmarkmið  námsins er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til starfs síns og bæta við þekkingu þeirra og hæfni í starfi öryggisvarða. Með þessu námi hefur starf öryggisvarða farið á enn hærra stig.  Öllum stjórnendum Securitas býðst framhaldsmenntun á háskólastigi sem er fyrirfram skilgreind og valin af fyrirtækinu.  Í haust fóru stjórnendur Securitas í Háskólann í Reykjavík, í janúar í Háskóla Íslands og verið er að teikna upp næsta haust með Háskólanum í Bifröst. 


Frá afhendingu starfsmenntaverðlauna Starfsmenntaráðs 2009

« Til baka

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070