|
Föstudaginn 6. nóv. var ritað undir samstarfsamning milli Forvarnahússins og Securitas, þar sem Securitas gerist einn aðalstyrktaraðili Forvarnarhússins. Með þessari undirskrift var farsælt samstarf Securitas og Forvarnahússins síðan 2006 framlengt til þriggja ára. Forvarnahúsið er fræðslumiðstöð þar sem forvarnir bæði innan heimilis sem og utan eru kynntar. Markmið Forvarnahússins er að efla og samræma forvarnir í landinu. Starfsmenn Forvarnahússins starfa með fyrirtækjum, félagasamtökum og opinberum aðilum um eflingu og samhæfingu slysvarna. Securitas er leiðandi fyrirtæki á sviði öryggismála og hefur um árabil boðið alhliða öryggislausnir s.s. bruna- og innbrotavarnir fyrir heimili og fyrirtæki og verða þær áfram kynntar í Forvarnahúsinu.
„Við hjá Securitas erum mjög ánægð með það mikla og góða starf sem Forvarnahúsið hefur skilað til samfélagsins og sem stærsta öryggisfyrirtæki landsins teljum við okkur ljúft og skylt að styðja við þessa jákvæðu og nauðsynlegu starfsemi.“ Segir Trausti Harðarson forstjóri Securitas. Þúsundir gesta kynna sér öryggismál í Forvarnahúsinu á ári hverju.

Herdís Storgaard forstöðumaður Forvarnahússins og Trausti Harðarson forstjóri Securitas
|