Fréttir

Securitas Reykjanesi á Ljósanótt 2009

Sýningin Reykjanes 2009 verður opnuð í dag í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Sýningin verður opin dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri" og þar verður kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu.

Yfir 50 sýnendur af öllum stærðum og gerðum munu kynna starfsemi sína, vörur og þjónustu á Reykjanesi 2009 og þar af eru mörg stærstu fyrirtækin á svæðinu.

Securitas Reykjanesi verður með sýningarbás á sýningunni og kynnir þar m.a. Heimavörn Securitas.

Sýningin verður opnuð í dag, föstudag, kl. 17:00 og stendur til kl. 20:00. Laugardag og sunnudag verður sýningin opin frá kl. 12:00 til 18:00. Almenningur verður boðinn velkominn alla sýningardagana, og er aðgangur ókeypis.

Á meðan kvölddagskrá Ljósanætur stendur yfir í miðbænum verður Securitas með aukna gæslu í íbúðahverfum. Laugardaginn 5. september, klukkan 13:00, bjóðum við 1960 árganginn velkominn í húsnæði Securitas, Hafnargötu 60. Þar er tilvalið fyrir gömlu skólafélagana að hittast, þiggja kaffi og kleinur og rifja upp gömul kynni áður en Árgangagangan hefst klukkan 13:30.

Við hvetjum íbúa allra sveitarfélaga á Reykjanesi til að koma í heimsókn og kynna sér þjónustu Securitas, Reykjanesi.

« Til baka

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070