Fréttir

Securitas tekur að sér þjónustu við viðskiptavini StoreVision á Íslandi.

Securitas hefur tekið að sér þjónustu við viðskiptavini StoreVision á Íslandi og samhliða því gert samning við StoreVision Nordic AS sem er danska félagið sem á tæknilausnina og vörumerkið. Securitas er því nú með einkarétt á lausninni og vörunni á Íslandi.

StoreVision er lausn sem sérhæfð er í að veita verslunarfyrritækjum þjónustu til að draga úr rýrnun við verslunarkassa og á fleiri sviðum. Nýting búnaðar felur í sér skoðun á gögnum frá verslunarkassa og myndavél til að greina frávik frá eðlilegum flæði varnings og misfellur í greiðslukerfi.

Að sögn Trausta Harðarsonar forstjóra Securitas eru talsverðir vaxtarmöguleikar og mikill styrkur í því að geta boðið upp á þessa lausn til viðbótar breiðri vörulínu Securitas.

« Til baka

SECURITAS hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
Fax 580 7070