Securitas

5807000

Smelltu hér

Náið samstarf Securitas og Eimskips sannar sig

Árni GuðmundssonÍ tilefni umfjöllunar um öryggismál á athafnasvæði Eimskips:

Öryggismál á athafnasvæði Eimskips hafa á síðustu dögum verið til umfjöllunar í fjölmiðlum vegna tilrauna hælisleitenda á Íslandi til þess að lauma sér um borð í skip félagsins sem liggja við bryggju og eru á leið til Bandaríkjanna. Öryggisgæslan á svæðinu, sem er í höndum Securitas, og þær öryggisráðstafanir sem gerðar hafa verið á athafnasvæði félagsins í samvinnu þessara aðila, hafa ítrekað sannað sig á liðnum mánuðum og misserum. Öryggisverðir fyrirtækisins hafa margsinnis náð að stöðva tilraunir af þessu tagi og komið umræddum mönnum í hendur lögreglu. 

Öryggismál skipa æ stærri sess í daglegu starfi fjölmargra fyrirtækja á Íslandi. Váatburðir og öryggisbrestir af af ýmsu tagi eru farnir að verða daglegt umfjöllunarefni fjölmiðla. Þróunin í þessum efnum er ekki ákjósanleg. Umtalsverðir hagsmunir geta verið í húfi í því að hægja á þessari þróun, bæði fjárhagslegir hagsmunir og almennir öryggishagsmunir gagnvart starfsmönnum viðkomandi fyrirtækja. Brýnt er að fyrirtæki móti sér hvert um sig sína eigin öryggisstefnu á þeim hraða og á þeim forsendum sem þau vilja byggja á í þessu sambandi.

Við hjá Securitas erum stolt af því að geta veitt faglega þjónustu á þessu sviði og af því að vinna með fyrirtækjum eins og Eimskip sem leggur metnað í að byggja á faglegri framkvæmd í öryggismálum. Hér er um vel heppnað samstarf þjónustukaupa og þjónustusala að ræða, þar sem byggt er á umfangsmiklum og blönduðum öryggislausnum þar sem bæði öryggiskerfi og mönnuð gæsla er samtvinnuð í skilvirka öryggislausn.

 

Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gæslusviðs Securitas