Hverjir eru með heimavörn?
Heimaöryggiskerfi eru núorðið nokkuð útbreidd á Íslandi og notkun þeirra sambærileg við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum þó að innleiðing öryggiskerfa hafi hafist mun seinna hér á landi. Mikil framför varð á Íslandi á árunum 2001–2002 í innleiðingu öryggiskerfa og öryggisþjónustu fyrir heimili.
Kúnnahópurinn er mjög fjölbreyttur og ekki hægt að segja að ákveðnir hópar samfélagsins kaupi sér öryggiskerfi umfram aðra. Þetta er fólk á öllum aldri og í öllum tekjuhópum þótt meira sé um að öryggiskerfi séu sett upp í sérbýlum. Engu að síður fá margir í fjölbýlishúsum sér öryggisvörn enda engin trygging gegn innbrotum og óhöppum eins og eldsvoða eða vatnstjóni að búa á 3. hæð.
Baldur Þór Gunnarsson, Framkvæmdastjóri Stjórnstöðvarsviðs Securitas




